Bifröst University
Fjárfestar og fasteignamarkaður. Hvert er hlutfall fjárfesta á fasteignamarkaði og möguleg áhrif þeirra.
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er íslenskur fasteignamarkaður skoðaður með sérstaka áherslu á hlutverk fjárfesta og áhrif þeirra á markaðinn. Rannsóknarspurningin er: „Hvert er hlutfall fjárfesta á fasteignamarkaði og möguleg áhrif þeirra? “ Til að svara þessari spurningu voru notuð bæði megindleg og eigindleg gögn. Opinber gögn frá HMS, Hagstofu Íslands og Seðlabanka Íslands voru greind til að varpa ljósi á eignarhald á íbúðum og þróun markaðarins. Auk þess var lögð könnun fyrir fasteignasala til að fá innsýn í upplifun þeirra af fjárfestum og áhrifum sem þeir töldu þá hafa á íbúðamarkaðinn. Fasteignasalar telja fjárfesta oft hafa forskot vegna greiðari aðgangs að fjármagni, sem getur torveldað einstaklingum og fjölskyldum að eignast húsnæði. Þetta hefur leitt til aukinnar umræðu um áhrif fjárfesta á fasteignaverð og aðgengi. Rannsóknin rýnir í fjármálavæðingu húsnæðismarkaðar. Niðurstöður sýna að fjárfestar, bæði einstaklingar og lögaðilar, eiga sífellt stærri hluta fasteigna. Hlutfall einstaklinga sem eiga fleiri en eina íbúð hefur vaxið, á meðan hlutfall þeirra sem eiga eina íbúð sem þau búa í hefur minnkað. Leigufélög og önnur hagnaðardrifin fyrirtæki eru einnig í auknum mæli áberandi á markaðnum. Rannsóknin staðfestir fyrri rannsóknir sem sýna að aukin þátttaka fjárfesta á fasteignamarkaði getur skapað ójafnvægi á milli framboðs og eftirspurnar, sem hefur bæði efnahagsleg og félagsleg áhrif. Rannsóknin gefur vonandi innsýn í þróun fasteignamarkaðarins og bendir til að þörf sé á stefnumótun til að tryggja jafnvægi á milli fjárfestinga og hagsmuna almennings. Niðurstöðurnar geta veita grunn til áframhaldandi umræðu og rannsókna á þessu sviði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hlynur Bæringsson 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49167
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49167