Abstract
dc:description.abstractÚtdráttur - Þjónusta við fatlað fólk er lögbundið verkefni sveitarfélaganna á Íslandi. Verkefnið, sem áður var hjá ríkinu, er stórt og viðamikið. Í nýlegum lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 er heimild til staðar fyrir sveitarfélög að framselja þessa þjónustu í hendur einkaaðila, sjálfseignarstofnana eða félagasamtaka með gerð þjónustusamninga. Sveitarfélög skulu ganga úr skugga um, að í slíkum tilfellum þá verði réttarstaða notenda ekki lakari en annars hefði verið. Er þetta nánar útfært í reglugerð um eftirlit og eftirfylgni vegna þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr.1036/2018 þar sem kveðið er á um gerð kröfulýsinga samhliða þjónustusamningum. Í starfi sínu hafði höfundur rekist á ósamræmi í starfsumhverfi ólíkra þjónustuaðila sem störfuðu á grundvelli slíkra þjónustusamninga sem vakti upp spurningar um ástæður þessa ósamræmis og hvaða áhrif það hefði á rekstrarumhverfi þeirra og samkeppnisstöðu sem og stöðu notenda þeirra. Hér verður farið yfir lagarammann sem heldur utan um þjónustu við fatlað fólk, samningana og kröfulýsingar sem gerðir eru við þjónustuaðila, matskvarði á þjónustuþörf fatlaðs fólks reifaður og staða kjarasamninga ólíkra þjónustuaðila sem starfa á grundvelli þjónustusamninga borin saman. Byggir rannsóknin sem er eigindleg rannsókn á skoðun á lögum, samningum og lýsingum sem eiga við þjónustuna. Tekin voru viðtöl við fjóra einstaklinga sem allir hafa tengingu við málaflokk fatlaðra með mismunandi hætti. Í lokin er rannsóknin dregin saman og niðurstaða kynnt. Það er von höfundar að niðurstöðurnar verði hagsmunaaðilum til góðs og hægt verði að nýta efnið til þess að betrumbæta og samræma rekstrarumhverfi þeirra sem starfa á grundvelli þjónustusamninga og þannig tryggja öruggari þjónustu fyrir notendur og jafnari rétt til handa starfsfólkinu sem starfar á þessum vettvangi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ásta Hrönn Ásgeirsdóttir 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49152
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49152