Back to search

Bifröst University

Grænþvottur í íslenskum netverslunum : innihaldsgreining á vörum með umhverfisfullyrðingum

Abstract

dc:description.abstract

Fyrirtæki hafa í auknum mæli verið að nota umhverfisfullyrðingar í markaðssetningu sinni til að svara eftirspurn neytenda eftir umhverfisvænum vörum en á sama tíma hefur grænþvottur færst í aukana. Grænþvottur er fyrirbæri sem hægt er að rekja aftur til níunda áratugarins en síðan þá hefur athygli fræðimanna að hugtakinu aukist eftir því sem græn markaðssetning verður vinsælli meðal fyrirtækja. Grænþvottur lýsir því þegar fyrirtæki setja fram rangar eða villandi upplýsingar um að vara sé umhverfisvæn. Markmið rannsóknarinnar var að skoða hversu algengur grænþvottur er í íslenskum netverslunum sem gefa sig út fyrir að selja umhverfisvænar vörur og hverjar birtingarmyndir hans eru. Í rannsókninni voru vörulýsingar á 104 vörum eins og þær birtust á heimasíðum netverslananna skoðaðar og greindar með innihaldsgreiningu. Með innihaldsgreiningu er hægt að greina skrifað og talað efni ásamt myndum, þemu og skilaboðum sem er beint til ákveðinna hópa. Notað var kóðunarkerfi þar sem skrifuðu efni var breytt á kerfisbundinn máta í megindleg gögn. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að íslensk fyrirtæki séu ekki undanskilin því að stunda grænþvott en 98 vörur af þeim 104 sem voru til skoðunar var hægt að tengja við einn eða fleiri þætti grænþvotts.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lára Guðjónsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/48289
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48289

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lára Guðjónsdóttir 1987-. Grænþvottur í íslenskum netverslunum : innihaldsgreining á vörum með umhverfisfullyrðingum. 2024. http://hdl.handle.net/1946/48289