Back to search

Bifröst University

Áhrif efnahagshruns á mannauðsstjórnun

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi er fræðileg og fjallar um mannauðsstjórnun í yfirstandandi efnahagshruni. Skoðað er hvort rannsókn sem gerð hefur verið um efnið sýni hvort efnahagshrunið hefur neikvæð áhrif á líðan, viðhorf og væntingar starfsmanna í kreppu. Til hliðsjónar var tekið viðtal við stjórnenda fyrirtækis sem stendur í miklum breytingum vegna efnahagshrunsins. Gagnabankar voru nýttir við heimildaöflun en fræðibækur, tímaritsgreinar og rannsóknir notaðar við ritun verksins. Í mannauðsstjórnun er aðaláhersla lögð á starfsfólk því sýnt hefur verið fram á að góð mannauðsstjórnun getur haft mikil áhrif á afkomu fyrirtækja. Mikilvægt er að hugsa vel um mannauðinn í efnahagskreppu, rekstaraðstæður fyrirtækja geta orðið erfiðar og til að auka líkurnar á að fyrirtækið lifi efnahagshrunið af þarf að sinna vel uppbyggingarstarfi og þarf hæft starfsfólk til að takast á við það. Niðurstöður rannsóknar sem fjallað er um í ritgerðinni gefa það til kynna að með góðri mannauðsstjórnun er auveldara að takast á við afleiðingar sem efnahagshrunið hefur á starfsfólk. Viðtalið sem tekið var við stjórnenda Arion banka var notað til hliðsjónar við rannsóknina og sýnir það einnig að mikilvægt sé að halda utan um mannauðinn á krepputímum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sandra Kristín Jónsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4604
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4604

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sandra Kristín Jónsdóttir 1985-. Áhrif efnahagshruns á mannauðsstjórnun. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4604