Back to search

Bifröst University

Áminningar og starfslok starfsmanna sveitarfélaga : er ferlið of flókið?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið með rannsókn þessari er að kanna viðhorf stjórnenda sveitarfélaga til ákvæða laga og kjarasamninga þegar kemur að áminningum og uppsögnum starfsmanna sveitarfélaga. Áminningar eru bundnar í lög og kjarasamninga og er sérstök ákvörðun yfirmanns eða stjórnvalds sem gripið er til ef starfsmaður hefur brotið starfsskyldur sínar eða nær ekki fullnægjandi árangri í starfi. Tilgangur áminninga er að bregðast við þessu framferði starfsmanns og veita starfsmanninum tækifæri til að bæta sig í starfi. Verði hins vegar starfsmaður aftur vís að samskonar broti eða háttsemi getur það leitt til uppsagna. Farið er ítarlega í það ferli sem felst í áminningum og uppsögn að undangenginni áminningu. Ferlið er skýrt á sem einfaldastan og auðskiljanlegastan hátt en það hefur þótt flókið vegna fjölda lagagreina sem og málsmeðferðareglna sem þarf að framfylgja í ferlinu. Spurningakönnun var send á stjórnendur sveitarfélaga sem voru spurðir um viðhorf sín til þessara laga og regla. 114 manns þátt í könnuninni og var 61% svarhlutfall. Niðurstöður rannsóknarinnar eru skýrar; stjórnendur sveitarfélaga eru almennt neikvæðir í garð þessa ferlis og telja að lagareglur og ákvæði kjarasamninga séu of flókin þegar kemur að áminningum og uppsögnum. Gerður var samanburður á milli stærri og smærri sveitarfélaga en enginn marktækur munur er á viðhorfum stjórnenda eftir stærð sveitarfélaga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásgerður Þorleifsdóttir 1975-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45138
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45138

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásgerður Þorleifsdóttir 1975-. Áminningar og starfslok starfsmanna sveitarfélaga : er ferlið of flókið?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45138