Back to search

Bifröst University

Af hverju mistakast samrunar

Abstract

dc:description.abstract

Samrunar hafa verið vinsælir meðal fyrirtækja í mörg ár og reynst góð leið til að vaxa á stuttum tíma. Þrátt fyrir vinsældirnar þá misheppnast meira en helmingur samruna. Rannsóknir hafa sýnt að ekki er lögð næg áhersla á undirbúing samruna og ekki nægjanlegt tillit tekið til ýmissa lykilþátta, eins og til dæmis mannauðsþáttarins. Í ritgerðinni er fjallað almennt um samruna, sögu og helstu hvata. Áhersla er lögð á hina ýmsu þætti í samrunaferlinu, eins og skipulag, stefnumótun, fyrirtækjamenningu og starfsmannaþáttinn. Í stuttu máli eru niðurstöður þær að stjórnendur eyða ekki nógu miklum tíma í samrunaferlið og undirbúning þess, sem getur leitt til mikillar óreiðu. Þetta hefur meðal annars truflandi áhrif á starfsfólkið, sem í kjölfarið á erfitt með að glíma við breytingarnar sem fylgja samrunanum. Hægt er að reyna koma í veg fyrir þetta með ýtarlegri skipulagningu og góðum undirbúning á samrunaferlinu, sem felst í því að undirbúa og upplýsa starfsfólkið vel ásamt því að móta skýra stefnu, sem veitir fyrirtæki og starfsfólki þess tilgang.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hólmfríður Bóasdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4509
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4509

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hólmfríður Bóasdóttir 1985-. Af hverju mistakast samrunar. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4509