Back to search

Bifröst University

Innleiðing íslenskra fyrirtækja á stefnu í sjálfbærni og samfélagslegri ábyrgð og birting upplýsinga um hana

Abstract

dc:description.abstract

Áskoranir jarðarbúa hafa aukist á síðustu árum vegna loftslagsbreytinga og hefur hugtakið samfélagsleg ábyrgð og sjálfbærni fengið aukið vægi innan veggja fyrirtækja. Upplýsingar sem fyrirtæki birta á vefsíðum og í ófjárhagslegum upplýsingum ársreikninga geta verið mismunandi eftir fyrirtækjum. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna ástæðurnar sem liggja að baki innleiðingu á stefnu, hvernig sú innleiðing verður árangursrík en einnig hvaða hvatar eru ráðandi innan veggja fyrirtækjanna þegar kemur að upplýsingasöfnun og birtingu þeirra. Rannsóknarspurningarnar voru: Hvar liggur hvati félaga til þess að innleiða skýra stefnu í sjálfbærni og samfélagslegri ábyrgð? og Hvert er mikilvægi tímasettrar og mælanlegrar upplýsingagjafar? Viðmælendur voru stjórnendur sem höfðu umsjón með sjálfbærnimálum stórra íslenskra fyrirtækja í mismunandi atvinnugreinum til þess að ná fjölbreytni í svörum. Til að svara rannsóknarspurningunum var framkvæmd eigindleg hálfopin viðtalsrannsókn. Tekin voru viðtöl við sjö einstaklinga. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar eru vísbendingar um að mikil óvissa ríki um hvaða upplýsingum fyrirtæki eigi að safna, hvernig eigi að safna þeim og hvaða upplýsingar eigi að birta. Það vefst fyrir stjórnendum hvernig eigi að framfylgja lögum og reglugerðum og að erfitt sé að staðsetja hvert fyrirtæki fyrir sig innan regluverksins. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að allir viðmælendur voru á þeirri skoðun að krafa um innleiðingu slíkrar stefnu hefði komið frá stjórnendum en að hvatinn til að annaðhvort uppfæra gamla stefnu eða setja nýja kæmi frá samfélaginu, þar með talið starfsfólkinu, regluverki frá Evrópu, settum lögum á Íslandi og fjármagnseigendum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurrós Pálsdóttir 1977-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43524
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43524

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurrós Pálsdóttir 1977-. Innleiðing íslenskra fyrirtækja á stefnu í sjálfbærni og samfélagslegri ábyrgð og birting upplýsinga um hana. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43524