Bifröst University
Útilokunarregla 5. mgr. 101. gr. einkamálalaga nr. 91/1991, Áhrif á niðurstöðu dómsmála
Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerðinni er fjallað um útilokunarreglu 5. mgr. 101. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991 (eml.) Reglan er ein af meginreglum einkamálaréttarfars en megintilgangur reglunnar er að takmarka möguleika aðila til að bæta við nýjum málsástæðum inn í málareksturinn á seinni stigum. Takmörkunin sem reglan felur í sér getur haft talsverð áhrif á rekstur dómsmáls og jafnvel niðurstöðu mála vegna þess að ekki er heimilt að líta til þeirra gagna sem útilokuð hafa verið samkvæmt reglunni í dómsniðurstöðu. Gerð er grein fyrir málsforræðisreglunni og beitingu 2. mgr. 111. gr. eml. en ákvæði greinarinnar er mjög áþekkt því sem birtist í 5. mgr. 101. gr. eml. Beiting ákvæðanna og áhrif þeirra í dómsmálum eru þó ólík. Gerð verður grein fyrir því hvaða réttaráhrif dómsniðurstöður hafa og þá sérstaklega með tilliti til framangreindra lagaákvæða.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristinn Rúnar Victorsson 1977-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43451
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43451