Back to search

Bifröst University

Helstu skyldur fasteignasala á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Fasteignaviðskipti eru oft stærstu viðskipti sem einstaklingar eiga yfir ævina. Miklu máli skiptir að fasteignasalar, sem höndla með háar fjárhæðir og jafnvel aleigu viðskiptavina sinna, starfi eftir skýrum lögum og reglum. Miklir hagsmunir eru í húfi og vanda þarf til verka. Segja má að regluverkið í kringum fasteignaviðskipti sé nokkuð traust og að miklu leyti byggt á sjónarmiðum um neytendavernd. Fasteignasalar hafa samkvæmt lögum um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015 einkarétt til að hafa milligöngu um sölu á fasteignum og skipum. Skyldur fasteignasala eru tíundaðar í sömu lögum. Þá ber fasteignasölum einnig að fylgja siðareglum Félags fasteignasala. Meginmarkmið með þessari ritgerð er að varpa ljósi á helstu skyldur fasteignasala með því að rýna í lagaumhverfi, dóma sem fallið hafa, úrskurði og álit nefnda á borð við Eftirlitsnefnd fasteignasala og úrskurðarnefnd í vátryggingamálum. Skoðað verður hvar mörk lögboðinna starfsskyldna fasteignasala og skyldur kaupanda og seljanda liggja. Einkum upplýsingaskyldu seljanda og aðgæsluskyldu kaupanda. Veigamestu skyldur fasteignasala eru skyldan til að gæta hagsmuna kaupanda og seljanda, skylda til að vanda til verka við skjalagerð, skylda fasteignasala til að skoða eignir vandlega áður en sölumeðferð hefst og skylda til að gera söluyfirlit þar sem öll helstu grundvallaratriði um eignina skulu tilgreind en kaupandi á að geta tekið ákvörðun um hvort hann vilji bjóða í eign og hve mikið út frá skoðun og upplýsingum á söluyfirliti.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín Rós Magnadóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42560
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42560

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín Rós Magnadóttir 1979-. Helstu skyldur fasteignasala á Íslandi. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42560