Back to search

Bifröst University

Um fyrningu kröfuréttinda og sjónarmið um beitingu kröfuvaktar

Abstract

dc:description.abstract

Hugmyndin að rannsóknarefni þessarar ritgerðar er sprottin af fréttaumfjöllun um stöðu þeirra einstaklinga sem enn sitja fastir á vanskilaskrá, tæplega fjórtán árum eftir hrun íslenska bankakerfisins, sökum þess að kröfuhafar virðast halda kröfum á lífi út í hið endalausa. Markmið rannsóknarinnar er að kanna, í því samhengi, hver fyrningarfrest-ur kröfuréttinda er samkvæmt íslenskum lögum og hvaða reglur gilda um slit á fyrningu. Jafnframt hvað felst í kröfuvakt og hvaða sjónarmið liggja að baki beitingu hennar. Þá verður skoðað hvort kröfuvakt geti leitt til fyrningarslita og hvort einhver dæmi séu þess að kröfuhafar hafi með einhverjum hætti gengið á réttindi skuldara eða beitt ólögmætum aðferðum. Höfundur byggir á hefðbundinni lögfræðilegri aðferð eða dogmatískri aðferðafræði. Viðfangsefni rannsóknarinnar eru skoðuð með hliðsjón af lögum, lögskýringargögnum, dómum og úrskurðum sem og skrifum fræðimanna. Vísað er í átján dóma með það að markmiði að útskýra löggjöfina enn frekar og eru valdir dómar reifaðir í sama tilgangi. Helstu hugtök sem fjallað er um eru hinn almenni skuldari, kröfuréttur, krafa, skuldara-samband, fyrningarfrestur, slit fyrningar, peningakrafa, kröfuvakt og ólögmæti. Helstu niðurstöður sýna að gildandi fyrningarlög nr. 150/2007 gera kröfuhöfum kleift að rjúfa fyrningu út í hið óendanlega, sem gengur þvert á þau meginmarkmið laganna, að tryggja að endi verði bundinn á skuldbindingar sem stofnað hefur verið til. Þá hafa kröfuhafar og innheimtuaðilar oftar en ekki farið offari og gengið á rétt skuldara með innheimtu fyrndra krafna sem og skráningu umdeildra skulda í skuldastöðukerfi Creditinfo Lánstrausts hf.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Selma Hrönn Maríudóttir 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42541
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42541

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Selma Hrönn Maríudóttir 1969-. Um fyrningu kröfuréttinda og sjónarmið um beitingu kröfuvaktar. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42541