Back to search

Bifröst University

Samskipti innan íþróttaliða og hugmyndafræði þjónandi forystu : reynsla landsliðsþjálfara

Abstract

dc:description.abstract

Hlutverk þjálfara í stjórnun íþróttaliða er margþætt og er drifið af því að ná árangri, hvort sem um er að ræða árangur með liðið eða einstaklinga innan þess. Mikilvægt er að þjálfari hafi skýra framtíðarsýn og hugsjón svo forsenda skapist til forystu, en sjálfsþekking leiðtogans og einlægur áhugi hans á öðrum, býr til umhvefi góðra samskipta sem eflir og hvetur til árangurs. Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna áherslur þjálfara í samskiptum sínum við leikmenn innan íþróttaliða. Þjálfararnir eiga það sameiginlegt að starfa eða hafa starfað sem landsliðsþjálfarar, hérlendis og/eða erlendis, það gefur til kynna færni þeirra í stjórnun sem leitt hefur til þess trausts sem borið er til þeirra til að leiða fremstu leikmenn þess lands sem þeir starfa hjá til árangurs. Auk þess verður kannað hvort og þá hvernig áherslur þjálfaranna endurspegli hugmyndafræði þjónandi forystu. Eigindleg rannsóknaraðferð var notuð þar sem tekin voru viðtöl við fimm stjórnendur íþróttaliða sem náð hafa góðum árangri með lið í fremstu röð og áherslur þeirra í samskiptum við leikmenn dregnar fram. Niðurstöður gefa til kynna mikilvægi þess að þjálfarar mæti leikmönnum á einlægan hátt, þar sem þeir hlusta til þess að skilja, leiðbeina og efla í átt að sjálfstæði og sjálfræði. Samkvæmt niðurstöðum er mikilvægt að byggja upp traust innan hópsins með góðum samskiptum sem byggð eru á hreinskilni og opnum samskiptum. Leikmenn þurfa einnig að vita sitt hlutverk í átt að sameiginlegum markmiðum og fái stuðning og frelsi til þess að vaxa innan þess hlutverks. Niðurstöður eru í takt við fyrri rannsóknir um þjónandi forystu þar sem fram kemur samspil þjónustu og forystu þar sem auðmýkt leiðtogans tengdist auknum áhuga starfsfólks og árangri heildarinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rúna Björg Sigurðardóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40581
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40581

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rúna Björg Sigurðardóttir 1985-. Samskipti innan íþróttaliða og hugmyndafræði þjónandi forystu : reynsla landsliðsþjálfara. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40581