Bifröst University
Stytting vinnuvikunnar : viðhorf stjórnenda á frístundaheimilum hjá Reykjavíkurborg til innleiðingarferlisins og áhrif á starfsemina
Abstract
dc:description.abstractStytting vinnuvikunnar tók gildi hjá starfsmönnum Reykjavíkurborgar þann 1. janúar 2021. Markmið rannsóknarinnar var að rýna betur í innleiðingarferlið og áhrif á starfsemina út frá viðhorfi stjórnenda með eftirfarandi rannsóknarspurningum; hver eru viðhorf stjórnenda á frístundaheimilum hjá Reykjavíkurborg til innleiðingarferlisins, hvernig samræmdist ferlið kenningum í breytingastjórnun og áhrif á starfsemina. Eigindlegri aðferð var beitt við gagnaöflun þessarar rannsóknar þar sem hálfopin viðtöl (e. semi-structured interviews) voru tekin við tíu stjórnendur á frístundaheimilum. Skilyrði voru sett að þeir hefðu starfað sem forstöðumenn í eitt ár eða lengur. Fyrri rannsóknir og kenningar sem tengjast styttingu vinnuvikunnar og sveigjanlegum vinnutíma voru skoðaðar, ásamt breytingastjórnunarkenningum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að stjórnendur höfðu jákvætt viðhorf til styttingar á vinnuvikunni. Þjónustugæði starfsins héldust óbreytt þrátt fyrir styttingu stjórnenda. Nokkrir stjórnenda upplifðu aukin afköst í þeirri viku sem þeir voru í styttingu en aðrir töldu afköstin óbreytt. Allir stjórnendur höfðu sýnt sveigjanleika í starfi í einhverjum tilfellum og mætt til vinnu vegna mikillar manneklu á degi styttingar. Flestir stjórnendur fengu að kjósa um útfærslu á vinnutímafyrirkomulagi en nokkrir þeirra ekki, sem voru áhugaverðar niðurstöður. Allir stjórnendur voru sammála því að stytting vinnuvikunnar hefði gert þeim kleift að samræma betur vinnu- og einkalíf með auknum frítíma sem þeir gátu ráðstafað eftir eigin þörfum. Í ljós kom að ekki var stuðst við fræði breytingastjórnunar við innleiðingarferlið heldur áttu lýðræðisleg sjónarmið að vera ríkjandi með kosningu á útfærslu styttingarinnar, sem ekki var fylgt eftir á öllum stöðunum. Hugtök: Stjórnendur, stytting vinnuvikunnar, sveigjanlegur vinnutími, breytingastjórnun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ásrún Ýr Rúnarsdóttir 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40554
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40554