Bifröst University
Ágreiningur á milli starfsmanna og áhrif á líðan, reynsla millistjórnenda hjá hinu opinbera
Abstract
dc:description.abstractÁgreiningur er eitt af þeim hugtökum sem hefur verið talsvert rannsakað í gegnum tíðina. Fyrri rannsóknir gefa til kynna að þetta sé flókið viðfangsefni. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða reynslu stjórnenda af ágreiningi á milli starfsmanna og áhrif á líðan þeirra sem eiga hlut að máli. Um var að ræða eigindlega viðtalsrannsókn en tekin voru viðtöl við 12 millistjórnendur sem störfuðu hjá A-hluta ríkisstofnunum og höfðu reynslu af því að takast á við ágreining á milli starfsmanna sinna. Helstu niðurstöðurnar voru þær að ágreiningur á milli starfsmanna er í fyrsta lagi snúið viðfangsefni. Hvenær, hvort og hvernig stjórnendur eiga að bregðast við er óljóst og það sama á við um skyldu þeirra. Þá skortir fræðslu og þjáflun við slíkar aðstæður. Þeir geta ekki sagt starfsfóki upp störfum nema veita því fyrst áminningu. Þá virðist einnig vera óljóst hvaða hegðun eða aðstæður gefa tilefni til áminningar og sömuleiðis hvort starfsmenn verða sjálfir að fara fram á það. Í öðru lagi þá virðist ágreiningur ýta undir vanlíðan stjórnenda og starfsmanna, en ekki með þeim hætti að hann bitni á starfi þeirra og geta þeir fengið stuðning við þær kringumstæður. Niðurstöðurnar þykja gefa góða innsýn þegar kemur að ágreiningi á milli starfsmanna og áhrif á líðan þeirra sem eiga hlut að máli út frá sjónarhorni stjórnenda.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristín Inga Pétursdóttir 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 9Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40552
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40552