Bifröst University
Skólastjórar í tónlistarskólum : hvað felst í starfinu og hvaða breytingar hafa orðið á því undanfarin ár?
Abstract
dc:description.abstractRannsókn þessi miðar að því að skoða umhverfi skólastjóra í tónlistarskólum. Skoðað verður hvað felst í starfinu og hvaða breytingar hafa orðið á starfinu undanfarin ár. Rannsóknarefnið er um margt áhugavert og einstakt vegna sérstakrar stöðu skólastjóra tónlistarskóla. Skólarnir starfa þvert á skólastig, nemendur eru á öllum aldri, kennsla fer að mestu fram í einkatímum og þá eru skólarnir í senn mennta- og menningarstofnanir. Samkvæmt vitneskju rannsakanda hefur ekki verið gerð sérstök rannsókn á starfi skólastjóra tónlistarskóla áður, það er því áhugavert að skoða umhverfi þeirra sérstaklega. Rannsóknin er eigindleg viðtalsrannsókn þar sem byggt er á djúpviðtölum við viðmælendur, sem búa yfir yfirgripsmikilli reynslu á sviðinu. Helstu niðurstöður eru þær að starfið þykir afar fjölbreytt og mikið reynir á mannlega þáttinn í starfinu. Í rannsókninni kom einnig fram að skólastjórnendur þurfa að búa yfir mikilli hæfni á sviði stjórnunar og rekstrar- og mannauðsmála ásamt því að vera faglegir leiðtogar með ítarlega þekkingu á sviði tónlistar. Niðurstöður benda til þess að á síðustu árum hafi starfið tekið miklum breytingum og umfang og ábyrgð þess aukist til muna. Þá hafa kröfur til tónlistarskólastjóra aukist umtalsvert, sérstaklega á sviði stjórnunar, stjórnsýslu- og rekstrarmála ásamt ýmiss konar skrifstofuvinnu. Sú aukna ábyrgð er oft á tíðum á kostnað þess tíma sem skólastjórar hafa til að sinna faglegri og listrænni stjórnun skólanna. Viðmælendur voru sammála um að skólarnir hefðu vaxið í samfélaginu og að þeir njóti almennt meiri hylli og virðingar sem faglegar mennta- og menningarstofnanir.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Aron Örn Óskarsson 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/39571
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/39571