Bifröst University
Notkun samfélagsmiðla hjá ferða- og upplifunarfyrirtækjum í Noregi.
Abstract
dc:description.abstractVið lifum í tækni- og upplýsingavæddu samfélagi þar sem stafrænn veruleiki skiptir sköpum. Þetta hefur leitt til þess að fyrirtæki þurfa að vera samkeppnishæf hvað varðar stafræna þróun og þurfa að aðlaga samskipti við viðskiptavini þannig að þau geti átt sér stað með eins einföldum hætti og mögulegt er. Jafnframt þurfa þau með skapandi hætti að koma upplýsingum um vörur sínar og þjónustu á framfæri við viðskiptavini. Stafræn markaðssetning á samfélagsmiðlum hjálpar fyrirtækjum að vera sýnileg í stafrænum heimi. Markmið þessarar ritgerðar er að komast að því hvernig ferða- og upplifunarfyrirtæki í Noregi notfæra sér samfélagsmiðla til stafrænnar markaðssetningar og að hvaða marki það er að skila sér. Eigindleg aðferð er notuð við framkvæmd rannsóknarinnar, en hún miðar að því að fá dýpri skilning á viðfangsefninu. Rannsóknin felur í sér að taka viðtöl innan ferða- og upplifunar geirans við einstaklinga sem hafa bæði þekkingu og reynslu á sviðinu. Stuðst er við bækur, fræðilegar greinar og kenningar um viðfangsefnið. Niðurstöðurnar rannsóknarinnar sýna að samfélagsmiðlar hafa verið nýttir í sífellt meira mæli til markaðsetningar fyrirtækjanna enda eru þeir mikilvægt verkfæri til stafrænnar markaðssetningar. COVID-19 hefur gert það að verkum að fyrirtækin eru nú ennþá virkari í að færa sér í nyt stafræna miðla og hafa orðið hugmyndaríkari í finna nýjar leiðir til þess að deila upplýsingum um vörur sínar og þjónustu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ruta Zakarauskaite 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/37677
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/37677