Back to search

Bifröst University

Breytingar á vinnuaðstæðum : viðbrögð og áhrif á starfsmenn Isavia ohf. af fyrirvaralitlum breytingum á vinnuaðstæðum í tengslum við COVID-19

Abstract

dc:description.abstract

Breytingar eru óhjákvæmilegur hluti allra skipulagsheilda og fagleg breytingastjórnun er mikilvægur hlekkur í því að breytingar verði árangursríkar og vel takist til við innleiðingu. Einhverjar stærstu samfélagslegu breytingar samtímans áttu sér stað á vormánuðum ársins 2020 þegar einstaklingar þurftu að færa vinnustöðvar sínar heim vegna útbreiðslu COVID-19. Isavia ohf. sinnir rekstri og uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli og var eitt þeirra félaga sem þurfti að takast á við slíkar breytingar og senda stóran hluta starfsmanna sinna heim að vinna. Megin tilgangur heimavinnu var að hefta útbreiðslu veirunnar innan samfélagsins og á vinnustaðnum og halda þannig félaginu starfhæfu. Í rannsókn þessari voru viðbrögð starfsmanna Isavia og líðan þeirra skoðuð með eigindlegri aðferð út frá kenningum um árangursríka breytingastjórnun og viðbrögðum við breytingum. Auk þess var reynsla þeirra og upplifun af heimavinnu skoðuð og það hvernig stjórnendur voru í stakk búnir til að takast á við þessar breytingar. Viðtöl voru tekin við fimm almenna starfsmenn á skrifstofu og tvo stjórnendur. Áður hafði reynsla starfsmanna af heimavinnu verið skoðuð með megindlegri rannsóknaraðferð af mannauðssviði Isavia og voru niðurstöður þessarar rannsóknar meðal annars bornar saman við niðurstöður þeirrar könnunar. Helstu niðurstöður benda til þess að starfsmenn hafi almennt brugðist vel við breytingunum og hafi á heildina nokkuð jákvæða reynslu af heimavinnunni. Stjórnendur virðast hafa verið fremur vel í stakk búnir til að takast á við breytingarnar og að styðja við sitt fólk.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jófríður Leifsdóttir 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/37676
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/37676

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jófríður Leifsdóttir 1974-. Breytingar á vinnuaðstæðum : viðbrögð og áhrif á starfsmenn Isavia ohf. af fyrirvaralitlum breytingum á vinnuaðstæðum í tengslum við COVID-19. 2021. http://hdl.handle.net/1946/37676