Back to search

Bifröst University

Markaðsstefnur íslenskra fyrirtækja : hve stór hluti fyrirtækja á Íslandi er með virka markaðsstefnu?

Abstract

dc:description.abstract

Mikilvægi þess að vera með markaðsstefnu er margumtalað í fræðunum en samkvæmt þeim er markaðsstefnu fyrirtækisins ætlað að halda markaðsstarfi þess á réttri braut og gæta þess að fjármunum sé sem best varið. Markaðsstefna á þannig að vera víðtæk stefnumörkun sem er leiðarljós í öllu markaðsstarfi fyrirtækja. Þó að mikið sé rætt um mikilvægi markaðsstefnu hefur einnig verið rætt um að jafnvel séu fyrirtæki á Íslandi ekki nógu dugleg við að halda úti slíkri stefnu og fylgja henni. Þetta varð til þess að rannsakandi ákvað að fara út í rannsókn til þess að svara rannsóknarspurningunni: Hve stór hluti fyrirtækja á Íslandi er með virka markaðsstefnu? Rannsóknin var framkvæmd með spurningakönnun sem send var á rúmlega 100 íslenska markaðsstjóra með tölvupósti. Könnuninni var skipt upp í fimm hluta og var henni ætlað að varpa ljósi á hvort viðkomandi fyrirtæki væri með virka markaðsstefnu, án þess þó að þátttakandanum væri tilkynnt að sérstaklega væri verið að rannsaka þann þátt. Hlutarnir fimm voru þannig byggðir á einkennum þess að til staðar væri virk markaðsstefna, sem byggð eru á fræðilegum bakgrunni rannsóknarinnar. Á tímabilinu svöruðu alls 48 markaðsstjórar könnuninni, svo þátttaka var tæp 50%. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að nákvæmlega helmingur úrtaksins, eða 24 af 48 fyrirtækjum sem gera 50%, eru með virka markaðsstefnu samkvæmt þeim viðmiðum sem sett voru fram. Stærstur hluti fyrirtækjanna er að sinna markmiðasetningu vel, setja sér markaðsleg markmið sem eru vel tengd viðskiptalegum markmiðum fyrirtækisins og vinna markvisst að þeim. Þá eru flestir með vel skráða fjárhagsáætlun og markaðsáætlun til eins árs. Hvað varðar ferli miðaðrar markaðssetningar eru flestir að markhópagreina viðskiptavini sína en þegar kemur að staðfærslu og að útfæra hana fyrir hvern markhóp er staðan ekki jafn góð. Þá eru fá fyrirtæki með markaðsáætlun til lengri tíma, 3-5 ára. Hafa ber í huga að ekki er hægt að yfirfæra niðurstöður rannsóknarinnar yfir á öll fyrirtæki á Íslandi þar sem úrtakið var ekki líkindaúrtak. Hins vegar voru stærstu aðilar á markaðinum meðal þátttakenda í rannsókninni auk þess sem svör bárust frá fjölbreyttum fyrirtækjum. Því má ætla að rannsóknin gefi ágætis mynd af stöðu þessara mála hjá stærri fyrirtækjum hér á landi, þó erfitt sé að fullyrða það með vissu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hafdís Rós Jóhannesdóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/37670
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/37670

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hafdís Rós Jóhannesdóttir 1998-. Markaðsstefnur íslenskra fyrirtækja : hve stór hluti fyrirtækja á Íslandi er með virka markaðsstefnu?. 2021. http://hdl.handle.net/1946/37670