Bifröst University
Útsendir starfsmenn : tilskipun 96/71/EB og innleiðing í landsrétt
Abstract
dc:description.abstractÚtdráttur Í Evrópu hefur nokkur ólga verið uppi um rétt útsendra starfsmanna gagnvart þjónusturétti fyrirtækja. Takast þar á sjónarmið félagslegra réttinda og frelsis til þjónustuveitingar innan bandalagsins. Með lögum nr. 45/2007 ,um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands, var tilskipun 96/71/EB, um störf útsendra starfsmanna í tengslum við veitingu þjónustu, innleidd í íslenskan rétt. Markmið ritgerðarinnar er að fjalla um tilskipunina og kanna hvaða sjónarmið lögð hafa verið til grundvallar á túlkun ákvæða hennar af Evrópudómstólnum. þeirra og leitast við að komast að því hvort ákvæði íslensku laganna samrýmist þeirri túlkun sem lögð er til grundvallar á ákvæðum tilskipunarinnar. Við rannsóknina var eftirfarandi spurning lögð til grundvallar: Var tilskipun 96/71/EB, um störf útsendra starfsmanna við veitingu þjónustu, innleidd með réttum hætti í íslenskan rétt með lögum nr. 45/2007? Eftir umfjöllun um tilskipunina og túlkun ED á ákvæðum hennar kom fram að til að ákvæði samræmist löggjöf Bandalagsins þurfi það, skv. ED og Framkvæmdastjórninni, að vera skýrt, nákvæmt og sett á grundvelli allsherjarreglu og meginreglunnar um jafna meðferð. Eftir að hafa rannsakað efnið og leitað heimilda var niðurstaða rannsóknarinnar sú að ákvæði laga nr. 45/2007 eru ekki haldin annmörkum og samrýmast löggjöf Bandalagsins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Pálmi Rögnvaldsson 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/3256
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/3256