Back to search

Bifröst University

Dýrðarljómi háloftanna

Abstract

dc:description.abstract

Dýrðarljóminn sem umvefur starf flugfreyja er flókið fyrirbæri sem vandasamt er að henda reiður á. Markmið þessarar rannsóknar var að gera ímynd flugfreyjunnar skil, öðlast skilning á hvernig viðmælendur mínir, flugfreyjurnar, upplifðu þessa ímynd og hvort hún væri í tengslum við raunverulegt starf þeirra. Það var gert með að fá innsýn í starf flugfreyjunnar á Íslandi og til þess þótti nálgun eigindlegrar aðferðarfræði henta best. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að viðmælendum þótti öllum nema einum ímynd flugfreyjunnar vera sveipuð þessum ljóma, sem þeir vildu gangast við og viðhalda. Samt sem áður nefndu viðmælendurnir aðra þætti í starfinu sem eru faldir á bak við dýrðarljómann, meðal annars álagið sem fylgir því. Enginn einn sér um að viðhalda staðalímynd flugfreyjunnar heldur eru hér margir samverkandi þættir að verki: Einkennisbúningurinn gegnir veigamiklu hlutverki, saga flugfreyjustarfsins, flugfélagið, markaðsöflin, flugfreyjurnar sjálfar og farþegarnir – útkoman er þessi ímynd flugfreyjunnar, sem er í litlum tengslum við raunverulegt starf hennar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Andrea Björgvinsdóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28350
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28350

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Andrea Björgvinsdóttir 1980-. Dýrðarljómi háloftanna. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28350