Bifröst University
Lýðræðisumbætur á Íslandi : veikleikar íslensks lýðræðis í aðdraganda bankahrunsins, þróun þess og samanburður við hugmyndir Iris Marion Young um rökræðulýðræði
Abstract
dc:description.abstractHér er fjallað um þá lýðræðislegu innviði íslensks samfélags sem reyndust veikburða í aðdraganda hruns. Helst er stuðst við áttunda bindi rannsóknarskýrslu Alþingis sem vinnuhópur um siðferði og starfshætti vann að. Þar nefni ég eftirlitsstofnanir, stöðu stjórnmálanna og fjölmiðlana; en þessir lýðræðislegu innviðir brugðust með ýmsum hætti. Þessi vandamál eru sett í samhengi við kenningar Iris Marion Young. Gagnrýni hennar á fulltrúalýðræðið varpar ljósi á eðli þeirra vandamála sem hér hafa ríkt. Að lokum er svo fjallað um aukna áherslu á þátttöku almennings í pólitískum athöfnum, sem birtist okkur eftir hrunið. Þessi aukna áhersla hefur birst meðal annars með þjóðfundunum tveim og ákvæðum um aukið beint lýðræði í frumvarpi til breytingar á stjórnarskránni. Einnig synjaði forsetinn lögum staðfestingu og vísaði þeim til þjóðarinnar. Mat er lagt á hvort þessar breyttu áherslur hafi unnið gegn þeim vanda sem finna mátti í íslensku samfélagi fyrir bankahrunið. Hugmyndum Young um rökræðulýðræði er ætlað að leysa ýmiss þau vandamál sem tilheyra formgerð fulltrúalýðræðis, eins og það birtist okkur í dag. Það er niðurstaða þessarar ritgerðar að sú breyting sem við höfum séð eftir bankahrunið er ekki í þá átt sem Young boðar. Áhersla hennar felst í eflingu rökræðu við ákvarðanatöku og að pólitísk umræða sé gerð víðfeðmari. Það er mat höfundar að enn skorti viðleitni í íslensku samfélagi að efla forsendur upplýstra skoðanamyndana, og að þessi aukna áhersla á beint lýðræði sé ekki merki um lýðræðislegar umbætur í íslensku samfélagi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jónína Björgvinsdóttir 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/17488
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/17488