Abstract
dc:description.abstractIll meðferð á dýrum er þekkt vandamál víða um heim sem endurspeglar mismikla virðingu fólks fyrir dýrum. Tilgangurinn með þessari fræðilegu samantekt er að skrifa um illa meðferð á dýrum, útbreiðslu fyrirbærisins, einkenni, áhættuþætti, orsakir og tengsl við önnur vandamál. Ætlunin er að sýna fram á að ill meðferð á dýrum er ekki einangrað merkingarlaust fyrirbæri heldur þýðingarmikil hegðun sem getur í sumum tilfellum gefið til kynna alvarleg hegðunarvandamál. Fræðimenn hafa t.d. rannsakað ofbeldi í fjölskyldum, andfélagslega hegðun og fantaskap og sýnt fram á tengsl þess við illa meðferð á dýrum. Sýnt hefur verið fram á að ill meðferð á dýrum er alvarlegt vandamál í Bandaríkjunum og nokkrum öðrum löndum og því fannst okkur áhugavert að gera fræðilega úttekt á þessu fyrirbæri. Fjallað verður um tengsl ofbeldis í nánum samböndum og illrar meðferðar á dýrum. Í þessu samhengi verður komið lítillega inn á hlutverk hjúkrunarfræðinga og viðbrögð við illri meðferð á dýrum og ofbeldi í nánum samböndum. Einnig er fjallað um tengsl á milli illrar meðferðar á dýrum í æsku og ofbeldis gagnvart fólki á fullorðinsárum. Niðurstöður urðu þær að ill meðferð á dýrum tengist ýmsum öðrum hegðunarvandamálum og getur verið upphafið að þróun mjög alvarlegra ofbeldisverka gagnvart fólki síðar á ævinni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Júlía Dögg Haraldsdóttir 1986-
- Sólveig Helga Sigfúsdóttir 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/8653
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/8653