Back to results

University of Iceland

Staða útivistarfatnaðar, markaðshlutdeild og ímynd útivistarmerkja

Abstract

dc:description.abstract

Ísland er land íss, elds og vatns. Á þessu landi á hjara veraldar er ekki óalgengt að frost og snjór láti sjá sig að sumri til eða þoka og haglél, jafnvel að þetta allt komi á einum og sama deginum. Fólk sem lifir við slíkar aðstæður þarf að klæða sig eftir veðri og þar kemur útivistarfatnaður inn í myndina. Til eru margar gerðir af slíkum fatnaði, mörg fyrirtæki framleiða ýmiskonar hlífðarfatnað en spurningin er hvað fólk ákveður að velja. Ekki eru gæði, ending, notagildi, þjónusta og útlit það sama hjá öllum þessum fyrirtækjum. Þessi ritgerð er rannsókn á fimm stórum útivistarmerkjum sem hafa náð góðri fótfestu hér á landi enda eru þau öll, að einu undanskyldu, íslensk. Merkin sem um ræðir eru The North Face, Cintamani, 66°Norður, Zo-On og Icewear. Framkvæmd var rannsókn í tveimur hlutum, fyrri hluti í formi spurningakönnunar og seinni hluti var þátttökuathugun sem fram fór á Háskólatorgi. Áður en ráðist var í rannsókn voru nokkur helstu hugtök markaðsfræðinnar skilgreind. Vörumerki, vörumerkjavirði og viðskiptavinavirði voru skoðuð ásamt hugtakinu hlutdrægni. Hlutdrægnin kemur inn því bæði rannsakandi og svarendur könnunar geta sýnt mikla hlutdrægni sem getur haft áhrif á niðurstöður rannsóknar. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að 66°Norður hefur bestu ímyndina þegar kemur að gæðum, notagildi, jákvæðu orðspori, tísku og hönnun og góðri þjónustu. Icewear kom aftur móti best út þegar spurt var út í verð. 66°Norður hefur einnig stærsta markaðshlutdeild samkvæmt rannsókninni en Cintamani fylgir þó fast á eftir, hér er þó um mat höfundar að ræða á markaðshlutdeild.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Herdís Ólöf Kjartansdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/8174
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/8174

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Herdís Ólöf Kjartansdóttir 1986-. Staða útivistarfatnaðar, markaðshlutdeild og ímynd útivistarmerkja. 2011. http://hdl.handle.net/1946/8174