Back to results

University of Iceland

Kyngervi raunvísinda: Námsval og aðstæður kvenna í ákveðnum greinum á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar er að kanna námsval og aðstæður kvenna í ákveðnum greinum á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands þar sem konur eru í minnihluta, nánar tiltekið í stærðfræði, eðlisfræði, tölvunarfræði og rafmagns- og tölvuverkfræði. Rannsóknin er byggð á spurningalistakönnun sem lögð var fyrir 185 nemendur (139 karla og 46 konur) sem stunda nám í þessum greinum. Niðurstöður benda til þess að konur sem velja þessar greinar hafi trú á eigin færni í stærðfræði og séu sterkir námsmenn en hafa þurft hvatningu og stuðning til að velja nám í hefðbundnum karlagreinum. Þá benda niðurstöður til þess að nemendur samsami sig vel við menningu og gildismat greinanna en þegar kemur að viðhorfi til kynja koma fram merki um ákveðna togstreitu, þar sem konur upplifa í minna mæli en karlar að virðing, viðurkenning og jafnrétti ríki innan námsins. Þetta getur bent til þess að skólunin hafi ekki heppnast algerlega og það búi eitthvað meira að baki heldur en fullkomin samsömun við sjálfsmynd greinanna. Niðurstöður rannsóknarinnar er hægt að nýta við stefnumótun innan Háskóla Íslands þar sem unnið er að því markmiði að fjölga nemendum af því kyni sem er í minnihluta í einstökum deildum innan Háskóla Íslands.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þuríður Ósk Sigurjónsdóttir 1977-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7206
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7206

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þuríður Ósk Sigurjónsdóttir 1977-. Kyngervi raunvísinda: Námsval og aðstæður kvenna í ákveðnum greinum á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7206