Back to results

University of Iceland

Handbók fyrir starfsfólk sumarnámskeiðs á vegum þekkingarhópsins Míns styrks

Abstract

dc:description.abstract

Þetta lokaverkefni til B.A. gráðu við þroskaþjálfabraut Háskóla Íslands er tvíþætt. Annars vegar er um að ræða handbók fyrir starfsfólk sumarnámskeiðs á vegum þekkingarhópsins Míns styrks en tilgangur hennar er að vera leiðandi rit fyrir starfsfólk og auðvelda því að skipuleggja námskeið fyrir unglinga á einhverfurófi. Hinsvegar er um að ræða greinargerð með handbókinni en hún er fræðileg dýpkun á efni hennar ásamt rökstuðningi fyrir þeim drögum sem hún byggir á. Ýmis sumarúrræði eru í boð fyrir unglinga á einhverfurófi en fá eru sérsniðin að þörfum þeirra. Lykilþáttur í þátttöku unglinganna er skipulagt umhverfi, stuðningur til félagslegrar þátttöku og þekking starfsfólks á þörfum þeirra. Unglingar á einhverfurófi glíma oft við vanhæfni í félagslegum samskiptum og eru fastheldnir á daglegar venjur. Þetta gerir það að verkum að þátttaka í tómstundastarfi getur reynst þeim erfið. Hægt er að stuðla að aukinni þátttöku með því að veita unglingunum viðeigandi stuðning en jafnframt þarf að hafa í huga að þeir geta upplifað sig sem fullgilda þátttakendur með því að takast á við óhefðbundin verkefni sem eru aðlöguð að þeirra þörfum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Guðný Björk Hallgrímsdóttir
  • Svanborg Guðgeirsdóttir
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6636
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6636

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðný Björk Hallgrímsdóttir; Svanborg Guðgeirsdóttir. Handbók fyrir starfsfólk sumarnámskeiðs á vegum þekkingarhópsins Míns styrks. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6636