Back to results

University of Iceland

Rezūm-vatnsgufumeðferð við góðkynja stækkun blöðruhálskirtils á Íslandi – árangur og öryggi

Abstract

dc:description.abstract

Inngangur: Rezūm-vatnsgufumeðferð er lágífarandi meðferð við góðkynja stækkun blöðruhálskirtils sem kemur til greina þegar lyfjameðferð hefur ekki reynst árangursrík eða þolist illa. Meðferðin var nýlega innleidd á Landspítala og engar rannsóknir hafa áður metið árangur og öryggi hennar á Íslandi. Markmið: Að meta árangur og öryggi Rezūm-meðferðar við BPH eftir innleiðingu á Íslandi og kanna forspárþætti fyrir meðferðarárangri og fylgikvillum. Aðferðir: Afturskyggn lýsandi rannsókn á öllum sjúklingum sem undirgengust Rezūm á Landspítala frá febrúar 2024 til október 2025. Metnar voru breytingar á hlutlægum mælikvörðum þvagblöðrutæmingar, lyfjanotkun og upplifun sjúklinga, auk tíðni og alvarleika fylgikvilla samkvæmt Clavien-Dindo flokkunarkerfinu. Samanburður á pöruðum mælingum var gerður með Wilcoxon signed-rank prófi og forspárþættir metnir með lógístískri aðhvarfsgreiningu. Niðurstöður: Rannsóknin náði til 81 sjúklings. Miðgildi aldurs var 68 ár (IQR 63–73) og miðgildi eftirfylgdartíma 6,5 mánuðir (IQR 4,3–11,1). Þvagafgangur lækkaði marktækt úr 89,5 mL (IQR 38,8–169,5) í 49,0 mL (IQR 7,0–89,3) (n = 44; p < 0,001), en breyting á hámarksþvagflæði náði ekki marktækni. Hlutfall sjúklinga á BPH-lyfjameðferð lækkaði úr 91,4% í 23,0% við fyrstu eftirfylgd og var 47,6% við síðustu eftirfylgd. Af þeim sem voru á hreinni aftöppun fyrir meðferð voru 67% (8/12) lausir við aftöppun við síðustu eftirfylgd. Við ≥6 mánaða eftirfylgd voru 82,6% sjúklinga ánægðir eða mjög ánægðir (n = 23). Fylgikvillar voru algengir en yfirleitt vægir; 5,1% fengu alvarlega fylgikvilla og enginn fékk lífshættulega fylgikvilla eða lést. Engin enduraðgerð var framkvæmd. Ályktun: Rezūm-meðferð virðist veita klínískt marktækan ávinning með bættri tæmingu þvagblöðru og minni þörf fyrir lyfjameðferð. Fylgikvillar eru algengir en yfirleitt vægir og tímabundnir. Niðurstöðurnar styðja notkun meðferðarinnar sem raunhæfan valkost í klínísku starfi á Íslandi, en lengri eftirfylgd er nauðsynleg til að meta varanleika árangurs.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Agnes Sigurðardóttir 2003-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53384
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53384

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Agnes Sigurðardóttir 2003-. Rezūm-vatnsgufumeðferð við góðkynja stækkun blöðruhálskirtils á Íslandi – árangur og öryggi. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53384