{"id":{"repo_id":"u-iceland","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/53384"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/u-iceland/oai:skemman.is:1946/53384","repository":{"repo_id":"u-iceland","name":"University of Iceland","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Rezūm-vatnsgufumeðferð við góðkynja stækkun blöðruhálskirtils á Íslandi – árangur og öryggi","abstract":"Inngangur: Rezūm-vatnsgufumeðferð er lágífarandi meðferð við góðkynja stækkun blöðruhálskirtils sem kemur til greina þegar lyfjameðferð hefur ekki reynst árangursrík eða þolist illa. Meðferðin var nýlega innleidd á Landspítala og engar rannsóknir hafa áður metið árangur og öryggi hennar á Íslandi. Markmið: Að meta árangur og öryggi Rezūm-meðferðar við BPH eftir innleiðingu á Íslandi og kanna forspárþætti fyrir meðferðarárangri og fylgikvillum. Aðferðir: Afturskyggn lýsandi rannsókn á öllum sjúklingum sem undirgengust Rezūm á Landspítala frá febrúar 2024 til október 2025. Metnar voru breytingar á hlutlægum mælikvörðum þvagblöðrutæmingar, lyfjanotkun og upplifun sjúklinga, auk tíðni og alvarleika fylgikvilla samkvæmt Clavien-Dindo flokkunarkerfinu. Samanburður á pöruðum mælingum var gerður með Wilcoxon signed-rank prófi og forspárþættir metnir með lógístískri aðhvarfsgreiningu. Niðurstöður: Rannsóknin náði til 81 sjúklings. Miðgildi aldurs var 68 ár (IQR 63–73) og miðgildi eftirfylgdartíma 6,5 mánuðir (IQR 4,3–11,1). Þvagafgangur lækkaði marktækt úr 89,5 mL (IQR 38,8–169,5) í 49,0 mL (IQR 7,0–89,3) (n = 44; p < 0,001), en breyting á hámarksþvagflæði náði ekki marktækni. Hlutfall sjúklinga á BPH-lyfjameðferð lækkaði úr 91,4% í 23,0% við fyrstu eftirfylgd og var 47,6% við síðustu eftirfylgd. Af þeim sem voru á hreinni aftöppun fyrir meðferð voru 67% (8/12) lausir við aftöppun við síðustu eftirfylgd. Við ≥6 mánaða eftirfylgd voru 82,6% sjúklinga ánægðir eða mjög ánægðir (n = 23). Fylgikvillar voru algengir en yfirleitt vægir; 5,1% fengu alvarlega fylgikvilla og enginn fékk lífshættulega fylgikvilla eða lést. Engin enduraðgerð var framkvæmd. Ályktun: Rezūm-meðferð virðist veita klínískt marktækan ávinning með bættri tæmingu þvagblöðru og minni þörf fyrir lyfjameðferð. Fylgikvillar eru algengir en yfirleitt vægir og tímabundnir. Niðurstöðurnar styðja notkun meðferðarinnar sem raunhæfan valkost í klínísku starfi á Íslandi, en lengri eftirfylgd er nauðsynleg til að meta varanleika árangurs.","abstract_html":"Inngangur: Rezūm-vatnsgufumeðferð er lágífarandi meðferð við góðkynja stækkun blöðruhálskirtils sem kemur til greina þegar lyfjameðferð hefur ekki reynst árangursrík eða þolist illa. Meðferðin var nýlega innleidd á Landspítala og engar rannsóknir hafa áður metið árangur og öryggi hennar á Íslandi. Markmið: Að meta árangur og öryggi Rezūm-meðferðar við BPH eftir innleiðingu á Íslandi og kanna forspárþætti fyrir meðferðarárangri og fylgikvillum. Aðferðir: Afturskyggn lýsandi rannsókn á öllum sjúklingum sem undirgengust Rezūm á Landspítala frá febrúar 2024 til október 2025. Metnar voru breytingar á hlutlægum mælikvörðum þvagblöðrutæmingar, lyfjanotkun og upplifun sjúklinga, auk tíðni og alvarleika fylgikvilla samkvæmt Clavien-Dindo flokkunarkerfinu. Samanburður á pöruðum mælingum var gerður með Wilcoxon signed-rank prófi og forspárþættir metnir með lógístískri aðhvarfsgreiningu. Niðurstöður: Rannsóknin náði til 81 sjúklings. Miðgildi aldurs var 68 ár (IQR 63–73) og miðgildi eftirfylgdartíma 6,5 mánuðir (IQR 4,3–11,1). Þvagafgangur lækkaði marktækt úr 89,5 mL (IQR 38,8–169,5) í 49,0 mL (IQR 7,0–89,3) (n = 44; p &lt; 0,001), en breyting á hámarksþvagflæði náði ekki marktækni. Hlutfall sjúklinga á BPH-lyfjameðferð lækkaði úr 91,4% í 23,0% við fyrstu eftirfylgd og var 47,6% við síðustu eftirfylgd. Af þeim sem voru á hreinni aftöppun fyrir meðferð voru 67% (8/12) lausir við aftöppun við síðustu eftirfylgd. Við ≥6 mánaða eftirfylgd voru 82,6% sjúklinga ánægðir eða mjög ánægðir (n = 23). Fylgikvillar voru algengir en yfirleitt vægir; 5,1% fengu alvarlega fylgikvilla og enginn fékk lífshættulega fylgikvilla eða lést. Engin enduraðgerð var framkvæmd. Ályktun: Rezūm-meðferð virðist veita klínískt marktækan ávinning með bættri tæmingu þvagblöðru og minni þörf fyrir lyfjameðferð. Fylgikvillar eru algengir en yfirleitt vægir og tímabundnir. Niðurstöðurnar styðja notkun meðferðarinnar sem raunhæfan valkost í klínísku starfi á Íslandi, en lengri eftirfylgd er nauðsynleg til að meta varanleika árangurs.","abstract_has_math":false,"creators":["Agnes Sigurðardóttir 2003-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskóli Íslands"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2026,"date_issued":"2026-05-28T08:12:42Z","date_published":"2026-05-28T08:12:42Z","updated_at":"2026-07-27T21:42:56Z","subjects":["Læknisfræði","Blöðruhálskirtill","Meðferð"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"https://hdl.handle.net/1946/53384","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskóli Íslands"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Agnes Sigurðardóttir 2003-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2026-05-28T08:12:38Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2026-05-28T08:12:38Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2026-05-28T08:12:42Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Læknisfræði","Blöðruhálskirtill","Meðferð"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["https://hdl.handle.net/1946/53384"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Inngangur: Rezūm-vatnsgufumeðferð er lágífarandi meðferð við góðkynja stækkun blöðruhálskirtils sem kemur til greina þegar lyfjameðferð hefur ekki reynst árangursrík eða þolist illa. Meðferðin var nýlega innleidd á Landspítala og engar rannsóknir hafa áður metið árangur og öryggi hennar á Íslandi. Markmið: Að meta árangur og öryggi Rezūm-meðferðar við BPH eftir innleiðingu á Íslandi og kanna forspárþætti fyrir meðferðarárangri og fylgikvillum. Aðferðir: Afturskyggn lýsandi rannsókn á öllum sjúklingum sem undirgengust Rezūm á Landspítala frá febrúar 2024 til október 2025. Metnar voru breytingar á hlutlægum mælikvörðum þvagblöðrutæmingar, lyfjanotkun og upplifun sjúklinga, auk tíðni og alvarleika fylgikvilla samkvæmt Clavien-Dindo flokkunarkerfinu. Samanburður á pöruðum mælingum var gerður með Wilcoxon signed-rank prófi og forspárþættir metnir með lógístískri aðhvarfsgreiningu. Niðurstöður: Rannsóknin náði til 81 sjúklings. Miðgildi aldurs var 68 ár (IQR 63–73) og miðgildi eftirfylgdartíma 6,5 mánuðir (IQR 4,3–11,1). Þvagafgangur lækkaði marktækt úr 89,5 mL (IQR 38,8–169,5) í 49,0 mL (IQR 7,0–89,3) (n = 44; p < 0,001), en breyting á hámarksþvagflæði náði ekki marktækni. Hlutfall sjúklinga á BPH-lyfjameðferð lækkaði úr 91,4% í 23,0% við fyrstu eftirfylgd og var 47,6% við síðustu eftirfylgd. Af þeim sem voru á hreinni aftöppun fyrir meðferð voru 67% (8/12) lausir við aftöppun við síðustu eftirfylgd. Við ≥6 mánaða eftirfylgd voru 82,6% sjúklinga ánægðir eða mjög ánægðir (n = 23). Fylgikvillar voru algengir en yfirleitt vægir; 5,1% fengu alvarlega fylgikvilla og enginn fékk lífshættulega fylgikvilla eða lést. Engin enduraðgerð var framkvæmd. Ályktun: Rezūm-meðferð virðist veita klínískt marktækan ávinning með bættri tæmingu þvagblöðru og minni þörf fyrir lyfjameðferð. Fylgikvillar eru algengir en yfirleitt vægir og tímabundnir. Niðurstöðurnar styðja notkun meðferðarinnar sem raunhæfan valkost í klínísku starfi á Íslandi, en lengri eftirfylgd er nauðsynleg til að meta varanleika árangurs."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Rezūm-vatnsgufumeðferð við góðkynja stækkun blöðruhálskirtils á Íslandi – árangur og öryggi"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskóli Íslands"],"dc:creator":["Agnes Sigurðardóttir 2003-"],"dc:date.accessioned":["2026-05-28T08:12:38Z"],"dc:date.available":["2026-05-28T08:12:38Z"],"dc:date.issued":["2026-05-28T08:12:42Z"],"dc:description.abstract":["Inngangur: Rezūm-vatnsgufumeðferð er lágífarandi meðferð við góðkynja stækkun blöðruhálskirtils sem kemur til greina þegar lyfjameðferð hefur ekki reynst árangursrík eða þolist illa. Meðferðin var nýlega innleidd á Landspítala og engar rannsóknir hafa áður metið árangur og öryggi hennar á Íslandi. Markmið: Að meta árangur og öryggi Rezūm-meðferðar við BPH eftir innleiðingu á Íslandi og kanna forspárþætti fyrir meðferðarárangri og fylgikvillum. Aðferðir: Afturskyggn lýsandi rannsókn á öllum sjúklingum sem undirgengust Rezūm á Landspítala frá febrúar 2024 til október 2025. Metnar voru breytingar á hlutlægum mælikvörðum þvagblöðrutæmingar, lyfjanotkun og upplifun sjúklinga, auk tíðni og alvarleika fylgikvilla samkvæmt Clavien-Dindo flokkunarkerfinu. Samanburður á pöruðum mælingum var gerður með Wilcoxon signed-rank prófi og forspárþættir metnir með lógístískri aðhvarfsgreiningu. Niðurstöður: Rannsóknin náði til 81 sjúklings. Miðgildi aldurs var 68 ár (IQR 63–73) og miðgildi eftirfylgdartíma 6,5 mánuðir (IQR 4,3–11,1). Þvagafgangur lækkaði marktækt úr 89,5 mL (IQR 38,8–169,5) í 49,0 mL (IQR 7,0–89,3) (n = 44; p < 0,001), en breyting á hámarksþvagflæði náði ekki marktækni. Hlutfall sjúklinga á BPH-lyfjameðferð lækkaði úr 91,4% í 23,0% við fyrstu eftirfylgd og var 47,6% við síðustu eftirfylgd. Af þeim sem voru á hreinni aftöppun fyrir meðferð voru 67% (8/12) lausir við aftöppun við síðustu eftirfylgd. Við ≥6 mánaða eftirfylgd voru 82,6% sjúklinga ánægðir eða mjög ánægðir (n = 23). Fylgikvillar voru algengir en yfirleitt vægir; 5,1% fengu alvarlega fylgikvilla og enginn fékk lífshættulega fylgikvilla eða lést. Engin enduraðgerð var framkvæmd. Ályktun: Rezūm-meðferð virðist veita klínískt marktækan ávinning með bættri tæmingu þvagblöðru og minni þörf fyrir lyfjameðferð. Fylgikvillar eru algengir en yfirleitt vægir og tímabundnir. Niðurstöðurnar styðja notkun meðferðarinnar sem raunhæfan valkost í klínísku starfi á Íslandi, en lengri eftirfylgd er nauðsynleg til að meta varanleika árangurs."],"dc:identifier.uri":["https://hdl.handle.net/1946/53384"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Læknisfræði","Blöðruhálskirtill","Meðferð"],"dc:title":["Rezūm-vatnsgufumeðferð við góðkynja stækkun blöðruhálskirtils á Íslandi – árangur og öryggi"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T21:42:56Z"}