University of Iceland
Glerefnasamsetning gosefna úr Ljósufjallakerfi á Snæfellsnesi: Gígar Berserkjahrauns og jarðvegssnið í Gæshólamýri
Abstract
dc:description.abstractGjóskulagafræði byggir á því að nýta eiginleika gjóskulaga til að afla upplýsinga um hegðun eldstöðva og tengja saman jarðmyndanir. Til þess er mikilvægt að greina uppruna gjóskulaga og skilgreina efnafræðilegt „fingrafar“ þeirra. Í þessari ritgerð var gjóska úr gígum í Berserkjahrauni (Kothraunskúla, Smáhraunskúla, Gráakúla og Rauðakúla) og gjóskulög úr Gæshólamýri safnað og sýnin efnagreind í örgreini. Markmið rannsóknarinnar var að skilgreina glerefnasamsetningu sýnanna, bera hana saman við fyrri rannsóknir og kanna hvort tengsl væru milli gjóskulaganna og gíganna í Berserkjahrauni. Efnagreiningar sýna að gjóskulögin hafa sambærilega basaltíska til millialkalíska efnasamsetningu, þótt ákveðinn breytileiki sé til staðar í styrk aðalefna milli gíganna. Sérstaklega má greina mun á hlutföllum Al₂O₃ og FeO, sem gerir mögulegt að flokka gígana í mismunandi efnafræðilega hópa. Niðurstöður sýna talsverð líkindi milli glerefnasamsetningar gjósku úr gígunum og efnasamsetningar Berserkjahrauns. Samanburður við fyrri rannsóknir á basaltmyndunum í Vatnafelli, sem talið er tilheyra Ljósufjallakerfinu, bendir einnig til efnafræðilegra líkinda, sérstaklega við frumstæðari sýni úr Gráukúlu og Rauðukúlu. Út frá gögnunum úr gígum Berserkjahrauns virðist efnasamsetning þeirra falla vel að þeirri basaltísku og alkalísku eldvirkni sem áður hefur verið lýst á Snæfellsnesi, þó gígarnir sýni jafnframt töluverðan innbyrðis breytileika. Niðurstöður rannsóknarinnar benda jafnframt til þess að gjóskulögin í Gæshólamýri eigi mögulega uppruna í gígunum í Berserkjahrauni, þó frekari rannsóknir á öðrum gosmyndunum á svæðinu séu nauðsynlegar til að staðfesta slíkan uppruna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jenný Geirdal Kjartansdóttir 2002-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53296
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53296