Back to results

University of Iceland

Leiklist fyrir erlenda ferðamenn: Framboð og grundvöllur í Reykjavík

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð eru birtar niðurstöður rannsóknar sem gerð var til að varpa ljósi á leiklist fyrir erlenda ferðamenn í Reykjavík. Menningartengd ferðaþjónusta er mikilvæg í borginni og er leiklist á Íslandi talin vera mjög kraftmikil og sérstök. Leitast var við að svara tveimur rannsóknarspurningum sem myndu á einhvern hátt veita innsýn í þessa afþreyingu fyrir erlenda ferðamenn. Í fyrsta lagi hvert framboðið er af leiklistartengdum viðburðum fyrir erlenda ferðamenn í Reykjavík og í öðru lagi, hvernig viðkomandi aðilar sjá fyrir sér listformið leiklist í Reykjavík með tilliti til ferðaþjónustu fyrir erlenda ferðamenn. Stuðst var við eigindlegar rannsóknaraðferðir í formi viðtala og einnig var lítil viðtalskönnun framkvæmd á gististöðum í borginni. Helstu niðurstöður voru að framboðið virðist lítið en einungis var um eina sýningu að ræða þegar rannsókn var framkvæmd. Litið var til næstu mánaða og er önnur sýning í bígerð sem og götuleikhús auk þriggja leiklistarhátíða. Talið er að leikhús í hinu opna rými sem og hátíðirnar laði að sér erlenda ferðamenn. Viðmælendur voru sammála um að framboð væri of lítið og að nýta ætti leiklistina í meiri mæli fyrir erlenda ferðamenn. Listaformið leiklist á sér gott orðspor vegna trúar á fyrirbærið en samt sem áður virðist sem svo að lítil virðing sé borin fyrir því. Helstu hömlur voru að mati viðmælenda samvinna ferðaþjónustuaðila og listamanna og skortur á fé. Óskir viðmælenda voru mismunandi: Ferðaþjónustuaðilar vildu fá leiklist í formi kvöldskemmtunar fyrir ferðamenn en listamennirnir vonuðu að gæði yrðu í hávegum höfð við gerð sýninga fyrir erlenda ferðamenn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Svava Björk Ólafsdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/5280
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/5280

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Svava Björk Ólafsdóttir 1981-. Leiklist fyrir erlenda ferðamenn: Framboð og grundvöllur í Reykjavík. 2010. http://hdl.handle.net/1946/5280