{"id":{"repo_id":"u-iceland","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/5280"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/u-iceland/oai:skemman.is:1946/5280","repository":{"repo_id":"u-iceland","name":"University of Iceland","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Leiklist fyrir erlenda ferðamenn: Framboð og grundvöllur í Reykjavík","abstract":"Í þessari ritgerð eru birtar niðurstöður rannsóknar sem gerð var til að varpa ljósi á leiklist fyrir erlenda ferðamenn í Reykjavík. Menningartengd ferðaþjónusta er mikilvæg í borginni og er leiklist á Íslandi talin vera mjög kraftmikil og sérstök. Leitast var við að svara tveimur rannsóknarspurningum sem myndu á einhvern hátt veita innsýn í þessa afþreyingu fyrir erlenda ferðamenn. Í fyrsta lagi hvert framboðið er af leiklistartengdum viðburðum fyrir erlenda ferðamenn í Reykjavík og í öðru lagi, hvernig viðkomandi aðilar sjá fyrir sér listformið leiklist í Reykjavík með tilliti til ferðaþjónustu fyrir erlenda ferðamenn. Stuðst var við eigindlegar rannsóknaraðferðir í formi viðtala og einnig var lítil viðtalskönnun framkvæmd á gististöðum í borginni. Helstu niðurstöður voru að framboðið virðist lítið en einungis var um eina sýningu að ræða þegar rannsókn var framkvæmd. Litið var til næstu mánaða og er önnur sýning í bígerð sem og götuleikhús auk þriggja leiklistarhátíða. Talið er að leikhús í hinu opna rými sem og hátíðirnar laði að sér erlenda ferðamenn. Viðmælendur voru sammála um að framboð væri of lítið og að nýta ætti leiklistina í meiri mæli fyrir erlenda ferðamenn. Listaformið leiklist á sér gott orðspor vegna trúar á fyrirbærið en samt sem áður virðist sem svo að lítil virðing sé borin fyrir því. Helstu hömlur voru að mati viðmælenda samvinna ferðaþjónustuaðila og listamanna og skortur á fé. Óskir viðmælenda voru mismunandi: Ferðaþjónustuaðilar vildu fá leiklist í formi kvöldskemmtunar fyrir ferðamenn en listamennirnir vonuðu að gæði yrðu í hávegum höfð við gerð sýninga fyrir erlenda ferðamenn.","abstract_html":"Í þessari ritgerð eru birtar niðurstöður rannsóknar sem gerð var til að varpa ljósi á leiklist fyrir erlenda ferðamenn í Reykjavík. Menningartengd ferðaþjónusta er mikilvæg í borginni og er leiklist á Íslandi talin vera mjög kraftmikil og sérstök. Leitast var við að svara tveimur rannsóknarspurningum sem myndu á einhvern hátt veita innsýn í þessa afþreyingu fyrir erlenda ferðamenn. Í fyrsta lagi hvert framboðið er af leiklistartengdum viðburðum fyrir erlenda ferðamenn í Reykjavík og í öðru lagi, hvernig viðkomandi aðilar sjá fyrir sér listformið leiklist í Reykjavík með tilliti til ferðaþjónustu fyrir erlenda ferðamenn. Stuðst var við eigindlegar rannsóknaraðferðir í formi viðtala og einnig var lítil viðtalskönnun framkvæmd á gististöðum í borginni. Helstu niðurstöður voru að framboðið virðist lítið en einungis var um eina sýningu að ræða þegar rannsókn var framkvæmd. Litið var til næstu mánaða og er önnur sýning í bígerð sem og götuleikhús auk þriggja leiklistarhátíða. Talið er að leikhús í hinu opna rými sem og hátíðirnar laði að sér erlenda ferðamenn. Viðmælendur voru sammála um að framboð væri of lítið og að nýta ætti leiklistina í meiri mæli fyrir erlenda ferðamenn. Listaformið leiklist á sér gott orðspor vegna trúar á fyrirbærið en samt sem áður virðist sem svo að lítil virðing sé borin fyrir því. Helstu hömlur voru að mati viðmælenda samvinna ferðaþjónustuaðila og listamanna og skortur á fé. Óskir viðmælenda voru mismunandi: Ferðaþjónustuaðilar vildu fá leiklist í formi kvöldskemmtunar fyrir ferðamenn en listamennirnir vonuðu að gæði yrðu í hávegum höfð við gerð sýninga fyrir erlenda ferðamenn.","abstract_has_math":false,"creators":["Svava Björk Ólafsdóttir 1981-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskóli Íslands"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2010,"date_issued":"2010-05-14T15:04:46Z","date_published":"2010-05-14T15:04:46Z","updated_at":"2026-07-27T21:41:20Z","subjects":["Ferðamálafræði","Leiklist","Menningartengd ferðaþjónusta"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/5280","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskóli Íslands"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Svava Björk Ólafsdóttir 1981-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2010-05-14T15:04:46Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2010-05-14T15:04:46Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2010-05-14T15:04:46Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Ferðamálafræði","Leiklist","Menningartengd ferðaþjónusta"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/5280"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Í þessari ritgerð eru birtar niðurstöður rannsóknar sem gerð var til að varpa ljósi á leiklist fyrir erlenda ferðamenn í Reykjavík. Menningartengd ferðaþjónusta er mikilvæg í borginni og er leiklist á Íslandi talin vera mjög kraftmikil og sérstök. Leitast var við að svara tveimur rannsóknarspurningum sem myndu á einhvern hátt veita innsýn í þessa afþreyingu fyrir erlenda ferðamenn. Í fyrsta lagi hvert framboðið er af leiklistartengdum viðburðum fyrir erlenda ferðamenn í Reykjavík og í öðru lagi, hvernig viðkomandi aðilar sjá fyrir sér listformið leiklist í Reykjavík með tilliti til ferðaþjónustu fyrir erlenda ferðamenn. Stuðst var við eigindlegar rannsóknaraðferðir í formi viðtala og einnig var lítil viðtalskönnun framkvæmd á gististöðum í borginni. Helstu niðurstöður voru að framboðið virðist lítið en einungis var um eina sýningu að ræða þegar rannsókn var framkvæmd. Litið var til næstu mánaða og er önnur sýning í bígerð sem og götuleikhús auk þriggja leiklistarhátíða. Talið er að leikhús í hinu opna rými sem og hátíðirnar laði að sér erlenda ferðamenn. Viðmælendur voru sammála um að framboð væri of lítið og að nýta ætti leiklistina í meiri mæli fyrir erlenda ferðamenn. Listaformið leiklist á sér gott orðspor vegna trúar á fyrirbærið en samt sem áður virðist sem svo að lítil virðing sé borin fyrir því. Helstu hömlur voru að mati viðmælenda samvinna ferðaþjónustuaðila og listamanna og skortur á fé. Óskir viðmælenda voru mismunandi: Ferðaþjónustuaðilar vildu fá leiklist í formi kvöldskemmtunar fyrir ferðamenn en listamennirnir vonuðu að gæði yrðu í hávegum höfð við gerð sýninga fyrir erlenda ferðamenn."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Leiklist fyrir erlenda ferðamenn: Framboð og grundvöllur í Reykjavík"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskóli Íslands"],"dc:creator":["Svava Björk Ólafsdóttir 1981-"],"dc:date.accessioned":["2010-05-14T15:04:46Z"],"dc:date.available":["2010-05-14T15:04:46Z"],"dc:date.issued":["2010-05-14T15:04:46Z"],"dc:description.abstract":["Í þessari ritgerð eru birtar niðurstöður rannsóknar sem gerð var til að varpa ljósi á leiklist fyrir erlenda ferðamenn í Reykjavík. Menningartengd ferðaþjónusta er mikilvæg í borginni og er leiklist á Íslandi talin vera mjög kraftmikil og sérstök. Leitast var við að svara tveimur rannsóknarspurningum sem myndu á einhvern hátt veita innsýn í þessa afþreyingu fyrir erlenda ferðamenn. Í fyrsta lagi hvert framboðið er af leiklistartengdum viðburðum fyrir erlenda ferðamenn í Reykjavík og í öðru lagi, hvernig viðkomandi aðilar sjá fyrir sér listformið leiklist í Reykjavík með tilliti til ferðaþjónustu fyrir erlenda ferðamenn. Stuðst var við eigindlegar rannsóknaraðferðir í formi viðtala og einnig var lítil viðtalskönnun framkvæmd á gististöðum í borginni. Helstu niðurstöður voru að framboðið virðist lítið en einungis var um eina sýningu að ræða þegar rannsókn var framkvæmd. Litið var til næstu mánaða og er önnur sýning í bígerð sem og götuleikhús auk þriggja leiklistarhátíða. Talið er að leikhús í hinu opna rými sem og hátíðirnar laði að sér erlenda ferðamenn. Viðmælendur voru sammála um að framboð væri of lítið og að nýta ætti leiklistina í meiri mæli fyrir erlenda ferðamenn. Listaformið leiklist á sér gott orðspor vegna trúar á fyrirbærið en samt sem áður virðist sem svo að lítil virðing sé borin fyrir því. Helstu hömlur voru að mati viðmælenda samvinna ferðaþjónustuaðila og listamanna og skortur á fé. Óskir viðmælenda voru mismunandi: Ferðaþjónustuaðilar vildu fá leiklist í formi kvöldskemmtunar fyrir ferðamenn en listamennirnir vonuðu að gæði yrðu í hávegum höfð við gerð sýninga fyrir erlenda ferðamenn."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/5280"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Ferðamálafræði","Leiklist","Menningartengd ferðaþjónusta"],"dc:title":["Leiklist fyrir erlenda ferðamenn: Framboð og grundvöllur í Reykjavík"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T21:41:20Z"}