Back to results

University of Iceland

Geðheilbrigðisþjónusta og utanaðkomandi stuðningsúrræði í íslenskum fangelsum: Upplifun fyrrum fanga og sjónarhorn fangavarða og starfsmanna utanaðkomandi úrræða

Abstract

dc:description.abstract

Andleg heilsa þeirra sem sitja í fangelsi er almennt bágborin sem má meðal annars rekja til vímuefnaneyslu, áfalla, geðraskana og erfiðra aðstæðna í fangelsi. Þrátt fyrir þær staðreyndir er geðheilbrigðisþjónusta ófullnægjandi og afar takmörkuð víðs vegar um heiminn og Ísland þar engin undantekning. Leitast var við að fá upplifun fyrrum fanga, fangavarða og annarra úr utanaðkomandi stuðningsúrræðum á geðheilbrigðisþjónustu og utanaðkomandi úrræðum. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð og hálfopin viðtöl tekin við þrjá viðmælendahópa: fangaverði, fyrrum fanga, þar af einn í samfélagsþjónustu og formann í utanaðkomandi úrræði. Þau lýstu öll manneklu, takmörkuðu aðgengi og skorti á viðeigandi geðheilbrigðis- og meðferðarþjónustu. Samfella í þjónustu ásamt undirbúningi fyrir afturkomu í samfélagið reyndist einnig vera af skornum skammti. Þrátt fyrir þessar áskoranir lýstu fangaverðir og fyrrum fangar jákvæðum upplifunum af þjónustu Geðheilsuteymisins. Niðurstöður rannsóknarinnar benda jafnframt til þess að utanaðkomandi stuðningsúrræði gegni mikilvægu hlutverki í að minnka einhæfar og einangrandi aðstæður í fangelsum með því að veita félagslegan- og tilfinningalegan stuðning sem og hagnýtan stuðning eftir afplánun.Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi bæði geðheilbrigðisþjónustu og utanaðkomandi stuðningsúrræða fyrir fanga. Þá benda þær jafnframt til þess að úrræði sem koma inn í fangelsin geti að einhverju leyti brugðist við þeim skorti sem er í þjónustu við fanga. Lykilorð: Geðheilbrigðisþjónusta, fangelsi, fyrrum fangar, utanaðkomandi stuðningsúrræði, fangaverðir, upplifun

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Alda Marín Ómarsdóttir 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52792
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52792

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Alda Marín Ómarsdóttir 1999-. Geðheilbrigðisþjónusta og utanaðkomandi stuðningsúrræði í íslenskum fangelsum: Upplifun fyrrum fanga og sjónarhorn fangavarða og starfsmanna utanaðkomandi úrræða. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52792