Back to results

University of Iceland

Fræðsluþarfir kvenna með meðgöngusykursýki: heildræn nálgun. Kerfisbundinn fræðilega samantekt á eiginlegum rannsóknum

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur: Meðgöngusykursýki er eitt algengasta heilsufarsvandamál á meðgöngu og hefur farið vaxandi á heimsvísu. Sjúkdómurinn getur haft áhrif á meðgöngu og aukið líkur á fylgikvillum svo sem ofvexti fósturs og erfiðleikum við fæðingu. Einnig er aukin áhætta á heilsufarsvandamálum hjá móður og barni síðar á ævinni. Meðferðin byggir helst á sjálfsumönnun og gegnir fræðsla lykilhlutverki en mætir þó ekki alltaf þörfum kvenna. Tilgangur og markmið: Að kanna fræðsluþarfir kvenna sem greinast með meðgöngusykursýki og hvaða fræðsluaðferðir styðja best við upplifun þeirra af stuðningi og valdeflingu. Aðferð: Framkvæmd var kerfisbundin fræðileg samantekt á eigindlegum rannsóknum í gagnasöfnunum PubMed, CINAHL og Scopus. Rannsóknirnar voru gæðametnar, settar upp í yfirlitstöflu og gögn voru greind með þemagreiningu. Niðurstöður: Leitin skilaði alls 1.359 greinum. Eftir kerfisbundið mat voru 18 rannsóknir valdar í samantektina. Við greiningu gagna komu fram tvö meginþemu og níu undirþemu. Greining sem sálfélagsleg áskorun og fræðsluþörf sem skiptist í fimm undirþemu: áfall, ótti og sjálfsásökun; samkennd og orðræða í samskiptum; áskoranir og aðlögun; áhersla á barnið og sýn á framtíðarheilsu; og menning, tungumál og félagslegur stuðningur. Tilfinningar líkt og áfall og sektarkennd við greiningu höfðu hamlandi áhrif á getu kvenna til að meðtaka upplýsingar. Aðferðir við miðlun fræðslu og valdefling í sjálfsumönnun með fjórum undirþemum: tækni og upphaf greiningar; hlutverk ljósmæðra og ferli aðlögunar; jafningjastuðningur og einstaklingsmiðun fræðslu; og krafa um samræmda og lausnamiðaða fræðslu. Skýr, samræmd og einstaklingsmiðuð fræðsla, ásamt jafningjastuðningi og styðjandi viðmóti, reyndist forsenda þess að konur gætu sinnt sjálfsumönnun og náð tökum á meðferðinni. Ályktun: Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi einstaklingsmiðaðrar fræðslu sem tekur mið af sálfélagslegum aðstæðum kvenna og er sett fram á skýran og hagnýtan hátt. Slík nálgun getur styrkt sjálfstraust kvenna, aukið þátttöku þeirra í meðferð og stuðlað að betri upplifun af meðgöngu þrátt fyrir greiningu. Lykilorð: Meðgöngusykursýki, fræðsluþarfir, upplifun, valdefling, kerfisbundin fræðileg samantekt, eigindlegar rannsóknir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eva Björk Axelsdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52756
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52756

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eva Björk Axelsdóttir 1981-. Fræðsluþarfir kvenna með meðgöngusykursýki: heildræn nálgun. Kerfisbundinn fræðilega samantekt á eiginlegum rannsóknum. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52756