Back to results

University of Iceland

Þýðing, aðlögun og staðfærsla System Usability Scale (SUS) fyrir íslensk börn

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur: Stafræn heilbrigðisþjónusta hefur færst í aukana og skipta gæði þessa hugbúnaðar höfuðmáli. Notkun stafrænna lausna getur verið gagnleg til einföldunar fyrir börn þar sem þau geta átt erfitt með flókin hugtök, langa texta og óljósar leiðbeiningar. Samkvæmt Evrópusambandinu og Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni (e. WHO) er hátt gæðastig hugbúnaðar nauðsynlegt til þess að nota hann innan heilbrigðisþjónustunnar. System Usability Scale (e. SUS) er aðgengilegur tíu spurninga kvarði sem nota má til að meta gæði stafrænna lausna. Aðferð: Í þessari rannsókn var SUS þýddur, aðlagaður og staðfærður fyrir íslensk börn á aldrinum 8–16 ára. Þýðingin fór fram samkvæmt TCA ferlinu sem samanstendur af sjö skrefum: undirbúningi og leyfisöflun, framþýðingu, samræmingu þar sem rannsakendur fóru yfir þýðingarnar og mótuðu drög að staðhæfingum, bakþýðingu sem óháður aðili framkvæmdi, sérfræðimati þar sem sérfræðingar í barnahjúkrun lögðu mat á orðalag með tilliti til orðaforða og skilnings barna, forskoðun þar sem tíu börnum var skipt í tvo rýnihópa til að meta skiljanleika og orðaval, og loks útgáfu og lokaúttekt. Að lokinni þýðingu og aðlögun var gerð notendaprófun en þá var aðlöguð útgáfa SUS C lögð fyrir 20 börn á aldrinum 8–16 ára og áfangaforprófuð eftir að þau höfðu notað barnvænt verkjamatsapp, PicPecc, í stutta stund. Niðurstöður: Þýðing, aðlögun og staðfærsla SUS kvarðans gekk greiðlega og var lítið um ágreining við þýðingu. Við bakþýðingu kom í ljós að merkingar höfðu haldist í þýðingarferlinu og var því hægt að forskoða kvarðann og fara svo yfir í notendaprófun SUS-C og PicPecc. Alls svöruðu 20 börn aðlagaða SUS-C eftir að hafa notað PicPecc appið. SUS-C reyndist skiljanlegur og nothæfur fyrir aldurshópinn en börnin lýstu almennt jákvæðri upplifun af notkun kvarðans. Ályktun: Niðurstöður gefa til kynna að SUS-C geti í fullnaðar forprófun nýst sem viðeigandi mælitæki til að meta upplifað notagildi stafrænna heilbrigðislausna hjá börnum á aldrinum 8–16 ára og réttlæta niðurstöðurnar áframhaldandi prófanir á SUS-C í stærra úrtaki til að staðfesta próffræðilega eiginleika og styrkja grunn að klínískri innleiðingu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sandra Salvör Kjartansdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52658
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52658

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sandra Salvör Kjartansdóttir 1987-. Þýðing, aðlögun og staðfærsla System Usability Scale (SUS) fyrir íslensk börn. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52658