Back to results

University of Iceland

La voix de Nathalie Sarraute dans Enfance

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er sjónum beint að sjálfsævisögunni Enfance [Barnæska] (1983) eftir franska rithöfundinn Nathalie Sarraute (1900-1999). Bókin var gefin út sem sjálfsævisöguleg frásögn og fjallar um fyrstu ellefu árin í lífi Sarraute. Rithöfundurinn byggir upp frásögnina með því að nota ljóðrænar aðferðir eins og sundurlaus skrif, leikrænar samræður tveggja radda í formi endurómsleiks þar sem fyrsta persónan „ég“ speglar sig í annarri persónu „þú“, notkun samheita til að lýsa tilfinningum, snúna tímaröð og þrípunkta til að merkja þögn í verkinu. Minningar höfundarins spretta upp úr tilfinningum sem koma fram skyndilega. Það eru tilfinningar sem grípa athygli Sarraute frekar en minningar úr fortíðinni þegar hún miðlar staðreyndum lífs síns og segir frá reynslu sinni. Þannig býr hún til eins konar nýtt form „nýja sjálfsævisögu“ í anda nýsögunnar (fr. „le nouveau roman“). Frásögnin er greind út frá sjónarhóli sjálfsævisagna og femínisma. Í samhengi við orðsifjar orðsins „enfance“ sem vísa til þess að vera „án raddar“ eða „raddalaus“ er sú tilgáta sett fram að megin inntak verksins felist í því að lýsa því hvernig litla Natacha fær rödd fullorðnar manneskju en um leið rithöfundarins sem hún síðan verður. Í ritgerðinni er verkið sett í samhengi strauma og stefna í skáldsagnagerð í Frakklandi á 6. áratug 20, aldar, og helstu kenninga um sjálfsævisöguleg skrif. Einnig er fjallað um fémínískar bókmenntagagnrýni og, kvennasögulegar hliðar verksins. Að auki er fjallað um helstu persónur bókarinnar og hlutverk þeirra í mótun og uppvexti Nathalie Sarraute.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Alexander Linev 1967-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
fr

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52617
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52617

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Alexander Linev 1967-. La voix de Nathalie Sarraute dans Enfance. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52617