Back to results

University of Iceland

Inngildandi móttaka í leikskóla: Stuðningur við erlend börn og fjölskyldur með áherslu á öryggistengsl og þátttöku

Abstract

dc:description.abstract

Á síðustu árum hefur börnum af erlendum uppruna fjölgað töluvert í leikskólum á Íslandi, sem kallar á markvissari og inngildandi móttöku fjölskyldna. Markmið þessa verkefnis er að skoða hvernig móttökuáætlanir geta nýst til að efla inngildingu barna og fjölskyldna af erlendum uppruna við upphaf leikskólagöngu. Verkefnið byggir á fræðilegri samantekt innlendra og erlendra heimilda um inngildingu, fullgildi, upplifun barna og foreldra af íslensku skólasamfélagi, hindranir í inngildandi skólastarfi og hlutverk starfsfólks. Leitað var svara við rannsóknarspurningunni: Hvernig geta móttökuáætlanir verið markvisst nýttar til að efla inngildingu barna og fjölskyldna af erlendum uppruna? Niðurstöður sýna að vináttutengsl, virk þátttaka foreldra og jákvætt samstarf milli heimilis og skóla skipti sköpum fyrir vellíðan og þátttöku barna. Jafnframt benda þær til þess að tungumálahindranir, fordómar, áföll, misræmi í væntingum, skert þekking starfsfólks og stuðningur við þau geti torveldað inngildingu. Hér er lögð áhersla á hvernig ígrunduð móttökuáætlun sem byggir á öryggi í samskiptum, gagnkvæmu samstarfi við fjölskyldur, menningarnæmum samskiptum og faglegum stuðningi við starfsfólk.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ester Lóa Guðmundsdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52435
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52435

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ester Lóa Guðmundsdóttir 1996-. Inngildandi móttaka í leikskóla: Stuðningur við erlend börn og fjölskyldur með áherslu á öryggistengsl og þátttöku. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52435