Back to results

University of Iceland

„Af hverju þurfum við alltaf að vera ganga frá og fara í samveru?“: Ávinningur hæglætis í leikskólastarfi

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu lokaverkefni er fjallað um hæglæti í leikskólastarfi og er markmið þess að skoða þann ávinning sem fylgir því að vinna í átt að hæglæti. Okkar daglega líf einkennist oft af tímaskorti og auknum hraða í mörgum þáttum lífsins og er hæglæti mótsvar við þessum hraða og álagi sem einkennir nútímann. Hugmyndin felur í sér að hægja á sér, minnka kröfur og vera meira í núinu. Tilgangur verkefnisins er að skoða þróun leikskóla á Íslandi, hvað einkenndi starfið hér áður og hvernig hægt er að nýta hæglæti til þess að auka vellíðan barna og starfsfólks í leikskólum. Mikilvægt er að skoða hvernig leikskólastarfið hefur þróast til þess að sjá þá ávinninga sem fylgja því að innleiða nýja starfshætti og er því rýnt í fræðilegar rannsóknir og kenningar í þessari samantekt. Niðurstöður sýna að hæglátt leikskólastarf getur aukið vellíðan barna og starfsfólks, dýpkað leik og nám barna og bætt samskipti. Jafnframt koma fram áskoranir, svo sem skipulagsbreytingar og viðhorf starfsfólks. Niðurstöður undirstrika jafnframt mikilvægi þess að dvelja með (e. being with), að fara út af sporinu (e. going off track) og að kafa djúpt (e. diving deep), sem eru einmitt helstu einkenni hæglætis í leikskólastarfi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helena Dögg Einarsdóttir 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52322
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52322

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helena Dögg Einarsdóttir 2000-. „Af hverju þurfum við alltaf að vera ganga frá og fara í samveru?“: Ávinningur hæglætis í leikskólastarfi. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52322