University of Iceland
Ímynd barnaverndar á Íslandi: Upplifun starfsmanna í barnavernd
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var að skoða hvernig starfsmenn barnaverndar upplifa ímynd barnaverndar í íslensku samfélagi og hvaða áhrif hún hefur á starf þeirra og samskipti við fjölskyldur. Sérstök áhersla var lögð á að kanna áhrif ímyndar á traust, samvinnu og faglegt starf. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði með fyrirbærafræðilegri nálgun og var gögnum aflað með hálfopnum einstaklingsviðtölum við sex starfsmenn barnaverndar frá ólíkum sveitarfélögum. Gögnin voru greind með þemagreiningu til að draga fram helstu þemu og reynslu þátttakenda. Niðurstöður sýna að viðmælendur upplifa ímynd barnaverndar neikvæða í samfélaginu og einkennist hún af tortryggni, ótta og misskilningi. Neikvæð ímynd getur haft áhrif á starfsánægju og krefst mikillar orku starfsmanna til að byggja upp traust við foreldra og börn. Jákvæð reynsla og skýrar útskýringar á hlutverki barnaverndar geta dregið úr misskilningi og stuðlað að betri samskiptum og samstarfi. Viðmælendur lögðu áherslu á að fjölmiðlar og opinber umræða hafi veruleg áhrif á ímynd stofnunarinnar, bæði jákvæð og neikvæð. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi fræðslu og skýrra samskipta við fjölskyldur, fagfólk og almenning til að efla traust og jákvæða ímynd barnaverndar. Niðurstöðurnar gefa einnig vísbendingar um að stuðningur innan vinnustaðar og jákvætt starfsumhverfi dragi úr neikvæðum áhrifum og auki starfsánægju. Ályktanir rannsóknarinnar varpa ljósi á mögulegar leiðir til að styrkja ímynd barnaverndar og veita fagfólki betri stuðning við dagleg störf.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Alice Vera Biglio 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51682
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51682