Back to results

University of Iceland

Lyfjaheldni einstaklinga með fjölþættar heilbrigðisáskoranir: Fræðileg samantekt með áherslu á sjúkdóma, fötlun, færniskerðingu og fjöllyfjanotkun

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur: Slök lyfjaheldni er umfangsmikill gæðavandi í nútíma heilbrigðisþjónustu. Afleiðingarnar eru víðtækar sem hefur áhrif á heilsu, lífsgæði, dánartíðni og samfélagslegan kostnað. Ferlið hefst eftir að læknir ávísar lyfseðli og veltur á því hvort einstaklingur sæki lyf sitt í apótekið. Ýmsar orsakir eru fyrir lyfjainntöku sem fer úrskeiðis en ákveðnir skjólstæðingahópar virðast vera í meiri hættu á að fylgja ekki lyfjameðferð samkvæmt ráðleggingum. Tilgangur: Að greina helstu áhrifaþætti slakrar lyfjaheldni meðal einstaklinga með langvinna sjúkdóma, fötlun, færniskerðingu og fjöllyfjanotkun. Leitast er við að draga fram hvaða skjólstæðingahópar eru í mestri áhættu, helstu orsakir og hvaða úrræði í hjúkrun geta stuðlað að bættri lyfjaheldni. Aðferð: Fræðileg samantekt þar sem heimildaleit fór fram í gagnagrunninum PubMed með kerfisbundnum hætti. Hún markaðist af fræðilegum greinum um niðurstöður megindlegra rannsókna frá árunum 2015-2025. Upplýsingar úr rannsóknunum voru settar fram á skilmerkilegan hátt með ,,matrix” aðferð og niðurstöður samþættar. Við úrvinnslu heimilda var stuðst við PRISMA flæðirit. Niðurstöður: Slök lyfjaheldni á sér fjölbreyttar orsakir, allt frá vitrænni skerðingu, skorti á fræðslu og stuðningi til flókins lyfjaskema og félagslegra þátta eins og einangrunar eða fjárhagslegs óöryggis. Einstaklingar með færniskerðingu og þeir sem taka fjölmörg lyf eru í sérstaklega mikilli áhættu. Einstaklingsmiðað fræðsluefni, áminningar, lyfjayfirlit og aðkoma aðstandenda hafa jákvæð áhrif á lyfjaheldni. Jafnframt gegna hjúkrunarfræðingar lykilhlutverki í skimun og forvörnum. Ályktanir: Ljóst er að skortur er á samræmdum aðferðum við mat og úrvinnslu á slakri lyfjaheldni. Frekari rannsóknir eru nauðsynlegar til að þróa árangursríkar íhlutanir sem taka mið af þörfum viðkvæmra hópa. Brýnt er að rannsaka áhrif einstaklingsmiðaðra inngripa og nýtingu stafrænnar tækni sem styður við lyfjainntöku. Þverfaglegt samstarf og aukin vitund fagfólks eru lykilatriði til að sporna gegn afleiðingum þessa alvarlega gæðavanda. Vitundarvakning er forsenda þess að fagfólk bregðist tímanlega við áskorunni. Lykilorð: Lyfjaheldni, slök lyfjaheldni, eldra fólk, sjúkdómar, fötlun, fjöllyfjanotkun, færniskerðing.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Melkorka Elín Sigurðardóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50592
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50592

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Melkorka Elín Sigurðardóttir 1998-. Lyfjaheldni einstaklinga með fjölþættar heilbrigðisáskoranir: Fræðileg samantekt með áherslu á sjúkdóma, fötlun, færniskerðingu og fjöllyfjanotkun. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50592