Back to results

University of Iceland

The effect of EGFL7 on the TGF-β/BMP family

Abstract

dc:description.abstract

Meðgöngueitrun er sjúkdómur sem u.þ.b. 2-8% kvenna fá meðan a meðgöngu stendur og getur sjúkdómurinn verið lífshættulegur bæði móður og barni. Talið er að sjúkdómurinn stafi af afbrygðilegri fylgjumyndun, en í eðlilegri fylgjumyndun undirgangast næriþekjufrumur (e. Trophoblast cells) bandvefsumbreytingu (EMT) þar sem þær skipta út æðaþelsfrumum skúfslagæðarinnar fyrir sýndaræðaþelsfrumur. Við þetta ferli verður umbreyting á skúfslagæðinni þar sem hún verður gegndræpari og veitir minna viðnám til að hafa nægt blóðflæði til fósturs. Í meðgöngueitrun virðist sem þessir ferlar raskist, en skúfslagæð móður helst þröng og verður því blóðflæði til fósturs takmarkað. Rannsóknir hafa bent til þess að ójafnvægi sé í þessum þáttum sem stjórna æðamyndun í fylgjunni en sýnt hefur verið fram á að TGF-β fjölskyldan komi meðal annars að stjórnun æðamyndunar. Einnig hefur verið sýnt fram á að TSP-1 hindri æðamyndun í æðaþelsfrumum og að æðaþelspróteinið EGFL7 geti leitt til aukins frumuskriðs í fylgjumyndun. Takmörkuð þekking er á undirliggjandi ferlum íferðar næriþekjufrumna en tilgáta rannsóknarhópsins að EGFL7, í gegnum EMI hneppið, gegni mikilvægu hlutverki í að viðhalda blóðþrýstingsjafnvægi og æðavirkni í fylgjuþroska með því að stjórna TGF-β boðleiðum. Niðurstöður leiddu í ljós að mögulega er einhver fylgni á milli EGFL7 og TSP-1, en bentu niðurstöður til þess að EGFL7 og TSP-1 séu í samskiptum eftir seytingu hjá næriþekjufrumum. Einnig virðist sem EGFL7 og TSP-1 séu í einhverskonar samspili í sáraviðgerðum hjá æðaþelsfrumum. Þörf er þó á frekari rannsóknum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rakel Karen Hrefnudóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50366
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50366

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rakel Karen Hrefnudóttir 1988-. The effect of EGFL7 on the TGF-β/BMP family. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50366