University of Iceland
Hvaða þættir eru notaðir til að ákvarða endurkomu til íþróttaiðkunar eftir slit á fremra krossbandi? Kerfisbundin samantekt
Abstract
dc:description.abstractINNGANGUR: Slit á fremra krossbandi (ACL) eru algeng og erfið meiðsli í íþróttum. Í kjölfar þeirra getur hnéð haft mikil áhrif á daglegt líf einstaklinga til lengri tíma, jafnvel ævilangt. Endurhæfingin er löng og oft fylgja önnur samfarandi meiðsli í kjölfarið. Markmið þessarar kerfisbundnu samantektar er að taka saman núverandi klínískar ráðleggingar um þau viðmið sem íþróttafólk þarf að uppfylla til að geta iðkað íþróttina aftur að fullu. Það að ná þessum viðmiðum gæti hugsanlega dregið úr líkum á endurteknum meiðslum sem geta verið algeng. Vonast er til þess að hægt sé að nýta þessa rannsókn sem leiðbeiningar fyrir fagfólk og íþróttafólk, til að miða við hvenær endurkoma til íþróttarinnar er tímabær. AÐFERÐIR: Rannsóknin er kerfisbundin samantekt á birtum ritrýndum greinum sem fjallar um þá þætti sem ákvarða endurkomu til íþróttaiðkunar eftir slit á ACL. Gagnagrunnarnir PubMed og Web of Science voru notaðir við heimildaleitina og leitarorðin tóku til endurgerðar ACL og viðmið og prófanir til mats á endurkomu í íþróttir. Leitin var takmörkuð við greinar sem voru birtar á ensku, rafrænt aðgengilegar, birtar síðastliðin 15 ár (2010-2025), hjá íþróttafólki 16 ára og eldri ásamt því að gefa ráðleggingar um hvaða próf eða mælitæki voru notuð með vörðum. NIÐURSTÖÐUR: Heimildaleitin skilaði alls sjö rannsóknum sem uppfylltu inntökuskilyrði og voru valdar í samantektina. Nokkrar greinar notuðu tíma frá aðgerð sem eitt af viðmiðum fyrir endurkomu til íþróttaiðkunar (RTS) en flestar mæltu með að meta mun á milli hliða með tilliti til vöðvastyrks, færni í hoppum og gæði hreyfinga. Oftast var talið mikilvægt að mæla vöðvastyrk í framanlærisvöðvum en nokkrar nefndu að meta vöðvastyrk í aftanlærisvöðvum ásamt því að meta hlutfallið á milli þeirra. Fáar greinar töldu mikilvægt að meta sálfræðilega þætti en nefndu spurningalista til að meta einkenni, athafnagetu og færni eftir ACLR. Ráðlagt er að ljúka við sértæka íþróttaþjálfun og þjálfa úthald ef það á við áður en RTS á sér stað. ÁLYKTUN: Margir þættir eru notaðir til að ákvarða RTS eftir ACL slit, þar má nefna tíma, samhverfu milli hliða og sálfræðilega þætti. Gagnsemi viðmiða er ekki vel þekkt upp á að þau minnki líkur á endurteknum meiðslum. Sálfræðilegir þættir gætu ef til vill spilað stærra hlutverk í RTS heldur en áður var talið.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Eva Aðalsteinsdóttir 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50341
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50341