University of Iceland
„Form og stíll örðugt viðfangs.“ Frásagnaraðferð í verkum Jakobínu Sigurðardóttur
Abstract
dc:description.abstractNafn Jakobínu Sigurðardóttur (1918–1994) virðist hafa fallið á milli þils og veggjar í umræðu um þá endurskoðun á íslensku skáldsagnaformi sem hófst um miðjan 7. áratug 20. aldar. Þrátt fyrir að hafa skrifað bækur sínar á tímabilinu 1959–1994 og frásagnarform fjölmargra verka hennar sé óvenjulegt og nýstárlegt – jafnvel einsdæmi – er Jakobínu ekki getið í öllum yfirlitsgreinum um íslenkar bókmenntir eftir 1960. Í þessari umfjöllun er leitast við að sýna fram á að Jakobína eigi skilið að vera talin einn af formbyltingarhöfundum íslenskrar sagnagerðar. Allar skáldsögur og smásagnasöfn Jakobínu eru til umfjöllunar hér og frásagnaraðferð þeirra er m.a. greind með hjálp hugrænnar frásagnarfræði (e. cognitive narratology). Fræðin, sem eru enn fremur lítt þekkt hér á landi, eru kynnt ítarlega í inngangskafla sem og jafnóðum við greiningu á sögunum. Í 2. kafla er fjallað um persónusköpun í smásögunni „Veginum upp á fjallið“ (Vegurinn upp á fjallið 1990) og skáldsögunum Dægurvísu (1965) og Snörunni (1968). Einræður og samtöl í ýmsum sögum Jakobínu eru til umfjöllunar í 3. kafla og í 4. kafla er gríðarlega margslungin og einstök frásagnaraðferð Lifandi vatnsins – – – (1974) rannsökuð. Í 5. kafla er þróun höfundarverks skáldkonunnar skoðuð, m.a. með tilliti til hlutverks sögumanns og höfundar í frásögninni, og greint frá hugmyndum um frásagnartækni sem beinlínis eru til umfjöllunar í verkunum. Þessi þróun og frásagnarfræðiumræða í sögum Jakobínu er einnig borin saman við fræðiskrif og skáldverk Halldórs Laxness.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ásta Kristín Benediktsdóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/5009
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/5009