Back to results

University of Iceland

„Form og stíll örðugt viðfangs.“ Frásagnaraðferð í verkum Jakobínu Sigurðardóttur

Abstract

dc:description.abstract

Nafn Jakobínu Sigurðardóttur (1918–1994) virðist hafa fallið á milli þils og veggjar í umræðu um þá endurskoðun á íslensku skáldsagnaformi sem hófst um miðjan 7. áratug 20. aldar. Þrátt fyrir að hafa skrifað bækur sínar á tímabilinu 1959–1994 og frásagnarform fjölmargra verka hennar sé óvenjulegt og nýstárlegt – jafnvel einsdæmi – er Jakobínu ekki getið í öllum yfirlitsgreinum um íslenkar bókmenntir eftir 1960. Í þessari umfjöllun er leitast við að sýna fram á að Jakobína eigi skilið að vera talin einn af formbyltingarhöfundum íslenskrar sagnagerðar. Allar skáldsögur og smásagnasöfn Jakobínu eru til umfjöllunar hér og frásagnaraðferð þeirra er m.a. greind með hjálp hugrænnar frásagnarfræði (e. cognitive narratology). Fræðin, sem eru enn fremur lítt þekkt hér á landi, eru kynnt ítarlega í inngangskafla sem og jafnóðum við greiningu á sögunum. Í 2. kafla er fjallað um persónusköpun í smásögunni „Veginum upp á fjallið“ (Vegurinn upp á fjallið 1990) og skáldsögunum Dægurvísu (1965) og Snörunni (1968). Einræður og samtöl í ýmsum sögum Jakobínu eru til umfjöllunar í 3. kafla og í 4. kafla er gríðarlega margslungin og einstök frásagnaraðferð Lifandi vatnsins – – – (1974) rannsökuð. Í 5. kafla er þróun höfundarverks skáldkonunnar skoðuð, m.a. með tilliti til hlutverks sögumanns og höfundar í frásögninni, og greint frá hugmyndum um frásagnartækni sem beinlínis eru til umfjöllunar í verkunum. Þessi þróun og frásagnarfræðiumræða í sögum Jakobínu er einnig borin saman við fræðiskrif og skáldverk Halldórs Laxness.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásta Kristín Benediktsdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/5009
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/5009

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásta Kristín Benediktsdóttir 1982-. „Form og stíll örðugt viðfangs.“ Frásagnaraðferð í verkum Jakobínu Sigurðardóttur. 2010. http://hdl.handle.net/1946/5009