Back to results

University of Iceland

Áhrif mataræðis á einkenni einstaklinga yfir breytingaskeið: Fræðileg samantekt

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur: Breytingaskeiðið er lífeðlisfræðilegt tímamót í lífi einstaklinga, sem ganga í gegnum tíðahvörf og fylgir oft breyttri hormónastarfsemi með fjölbreyttum einkennum, svo sem hitakófi, svefntruflunum, skapsveiflum og breytingu á líkamsþyngd. Rannsóknir benda til þess að mataræði og samsetning næringarefna geti haft áhrif á upplifun og einkenni einstaklinga á þessu tímabili og stuðlað að almennt betra hormónajafnvægi og heilsu. Rannsóknarsnið: Um er að ræða fræðilega samantekt á ritrýndum rannsóknum um tengsl næringar og einkenna á breytingaskeiði. Tilgangur: Tilgangur þessarar samantektar er að draga saman núverandi vísindalega þekkingu á áhrifum helstu næringarefna, próteins, fitu og kolvetna, ásamt mismunandi mataræði og algeng einkenni breytingaskeiðsins. Aðferð: Fræðileg leit fór fram í PubMed, Scopus, ScienceDirect og Google Scholar með áherslu á rannsóknir sem birtar voru á árunum 2015–2025. Þær rannsóknir sem stóðust inntöku- og útilokunarskilyrði voru metnar út frá ABC-gæðamati. Niðurstöður: Niðurstöður benda til að samsetning og gæði næringarefna, próteins, fitu og kolvetna hafi marktæk áhrif á einkenni tíðahvarfa. Omega-3 fitusýrur og próteinríkt mataræði tengdist vægari einkennum, á meðan óhófleg neysla á mettaðri fitu og hraðvirkum kolvetnum tengdist auknum einkennum. Trefjarík og glýsemísk lág kolvetni sýndu jákvæð áhrif og neysla á baunum og ólífuolíu sýndi jákvæð áhrif á tíðahvarfaeinkenni. Einnig bentu rannsóknir til að plöntumiðað– og miðjarðarhafsmataræði gæti dregið úr algengum einkennum og bætt líðan kvenna á breytingaskeiði. Ályktun: Niðurstöður samantektarinnar sýna að samsetning próteins, fitu og kolvetna, sem og mataræði, getur haft marktæk áhrif á einkenni tíðahvarfa. Ríkari neysla á omega-3 fitusýrum, hágæða próteini og trefjaríkum kolvetnum tengdist vægari einkennum og bættri líðan. Næring virðist því gegna lykilhlutverki í líkamlegri og andlegri vellíðan kvenna á breytingaskeiði. Lykilorð: einkenni, tíðahvörf, fyrir tíðahvörf, eftir tíðahvörf, næringarefni, fita, prótein, kolvetni, miðjarðarhafsmataræði, vegan mataræði, Ketógenískt mataræði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Alexandra Elíasdóttir 2001-
  • Magnea Þóra Jónsdóttir 1993-
  • Þorkell Ingi Eriksson 1994-
  • Þóra Júlía Valdemarsdóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49986
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49986

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Alexandra Elíasdóttir 2001-; Magnea Þóra Jónsdóttir 1993-; Þorkell Ingi Eriksson 1994-; Þóra Júlía Valdemarsdóttir 1994-. Áhrif mataræðis á einkenni einstaklinga yfir breytingaskeið: Fræðileg samantekt. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49986