University of Iceland
Áhrif mataræðis á einkenni einstaklinga yfir breytingaskeið: Fræðileg samantekt
Abstract
dc:description.abstractBakgrunnur: Breytingaskeiðið er lífeðlisfræðilegt tímamót í lífi einstaklinga, sem ganga í gegnum tíðahvörf og fylgir oft breyttri hormónastarfsemi með fjölbreyttum einkennum, svo sem hitakófi, svefntruflunum, skapsveiflum og breytingu á líkamsþyngd. Rannsóknir benda til þess að mataræði og samsetning næringarefna geti haft áhrif á upplifun og einkenni einstaklinga á þessu tímabili og stuðlað að almennt betra hormónajafnvægi og heilsu. Rannsóknarsnið: Um er að ræða fræðilega samantekt á ritrýndum rannsóknum um tengsl næringar og einkenna á breytingaskeiði. Tilgangur: Tilgangur þessarar samantektar er að draga saman núverandi vísindalega þekkingu á áhrifum helstu næringarefna, próteins, fitu og kolvetna, ásamt mismunandi mataræði og algeng einkenni breytingaskeiðsins. Aðferð: Fræðileg leit fór fram í PubMed, Scopus, ScienceDirect og Google Scholar með áherslu á rannsóknir sem birtar voru á árunum 2015–2025. Þær rannsóknir sem stóðust inntöku- og útilokunarskilyrði voru metnar út frá ABC-gæðamati. Niðurstöður: Niðurstöður benda til að samsetning og gæði næringarefna, próteins, fitu og kolvetna hafi marktæk áhrif á einkenni tíðahvarfa. Omega-3 fitusýrur og próteinríkt mataræði tengdist vægari einkennum, á meðan óhófleg neysla á mettaðri fitu og hraðvirkum kolvetnum tengdist auknum einkennum. Trefjarík og glýsemísk lág kolvetni sýndu jákvæð áhrif og neysla á baunum og ólífuolíu sýndi jákvæð áhrif á tíðahvarfaeinkenni. Einnig bentu rannsóknir til að plöntumiðað– og miðjarðarhafsmataræði gæti dregið úr algengum einkennum og bætt líðan kvenna á breytingaskeiði. Ályktun: Niðurstöður samantektarinnar sýna að samsetning próteins, fitu og kolvetna, sem og mataræði, getur haft marktæk áhrif á einkenni tíðahvarfa. Ríkari neysla á omega-3 fitusýrum, hágæða próteini og trefjaríkum kolvetnum tengdist vægari einkennum og bættri líðan. Næring virðist því gegna lykilhlutverki í líkamlegri og andlegri vellíðan kvenna á breytingaskeiði. Lykilorð: einkenni, tíðahvörf, fyrir tíðahvörf, eftir tíðahvörf, næringarefni, fita, prótein, kolvetni, miðjarðarhafsmataræði, vegan mataræði, Ketógenískt mataræði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Alexandra Elíasdóttir 2001-
- Magnea Þóra Jónsdóttir 1993-
- Þorkell Ingi Eriksson 1994-
- Þóra Júlía Valdemarsdóttir 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49986
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49986