University of Iceland
Áhrif þéttingarstefnu Reykjavíkurborgar á byggingarkostnað: Skýrir stefnan hækkun fasteignaverðs í Reykjavík á árunum 2010 -2025 eða er öðrum þáttum um að kenna?
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er skoðað hvort þéttingarstefna Reykjavíkurborgar hafi haft áhrif á byggingarkostnað íbúðarhúsnæðis og þar með á hækkun fasteignaverðs á árunum 2010–2025, umfram verðlagsþróun. Mikil hækkun fasteignaverðs hefur átt sér stað og sem dæmi má nefna að verðgildi íbúðar í Laugardalnum hefur nær þrefaldast á tímabilinu, þó verðlag hafi aðeins hækkað um 74,5%. Rannsóknarspurningin er sú hvort hækkun fasteignaverðs á tímabilinu megi rekja til aukins byggingarkostnaðar sem tengist þéttingarstefnu Reykjavíkurborgar, eða hvort aðrir þættir svo sem framboðsskortur, lóðaskortur, lánakjör og aukin eftirspurn hafi meiri áhrif. Gagnaöflun fól í sér greiningu á verðþróun fasteigna, byggingarvísitölu og neysluvísitölu, auk viðtala við aðila í byggingargeiranum. Sérstök áhersla er lögð á að meta hvernig þétting byggðar og stefna borgaryfirvalda hafa mótað markaðinn, og hvort sú stefna hafi leitt til aukins byggingarkostnaðar. Markmiðið er að varpa ljósi á hverjir helstu drifkraftar hækkunar fasteignaverðs eru. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að ekki er einhlýt skýring á hækkuninni. Þær aðstæður hafi skapast á tímabilinu að framboð nær ekki að halda í við eftirspurn og það veldur þrýstingi á íbúðamarkaðinn sem ýtir verðinu upp. Þéttingarstefna Reykjavíkurborgar skýrir hækkunina að hluta en um er að ræða 2-7% hærri byggingarkostnað á þéttingarreitum og hærri kostnað vegna lóðakaupa. Þá er það mat verktaka að lóðaverð hafi hækkað verulega og sé í dag um 30% af byggingarkostnað nýbygginga á þéttingarreitum. Aðrir þættir sem valda aukinni eftirspurn svo sem aukinn kaupmáttur, aðgengi að lánum, vaxtastig, lánakjör, fólksfjölgun og ásókn í að fjárfesta í íbúðarhúsnæði til að svara eftirspurn ferðamanna eftir gistingu í heimahúsum skýra einnig hækkunina. Höfundur er húsasmíðameistari, rak byggingaverktakafyrirtæki í 20 ár og hefur talsverða reynslu af byggingu mannvirkja og íbúðarhúsnæðis. Höfundur hefur einnig lokið diplomanámi í byggingaiðnfræði og rafiðnfræði frá Háskólanum í Reykjavík og nýttist sú þekking vel við vinnslu rannsóknarinnar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigurður Ingi Sigurpálsson 1978-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49958
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49958