University of Iceland
Öryggi í fararbroddi: hvetjandi og letjandi þættir í öryggismenningu gjörgæsludeilda: Fræðileg samantekt með kerfisbundinni aðferð
Abstract
dc:description.abstractBakgrunnur: Á gjörgæsludeildum liggja alvarlega veikir sjúklingar sem eiga á hættu að verða fyrir óvæntum atvikum, sem tengjast daglegum störfum á gjörgæsludeildum. Hátækni umhverfi gjörgæsludeilda og þær sérhæfðu meðferðir sem veittar eru þar, eru meðal þeirra þátta sem gera sjúklinga á gjörgæsludeildum berskjaldaða fyrir atvikum. Tilgangur: Að efla öryggi sjúklinga á gjörgæsludeildum og dýpka skilning á þeim þáttum sem móta öryggismenningu og áhættu innan þessarar sérhæfðu heilbrigðisþjónustu. Aðferð: Fræðileg samantekt með kerfisbundinni aðferð eigindlegra, megindlegra og blandaðra rannsókna. Heimildaleit fór fram á PubMed, Web of Science, Science Direct og CINAHL og notast var við PRISMA flæðirit til að lýsa heimildaleit. Framkvæmt var gæðamat á lykilrannsóknum eftir gæðavísum Joanna Briggs Institute. Rannsóknir voru settar upp í yfirlitstöflu og voru niðurstöður þeirra samþættar í texta. Niðurstöður: Fjörutíu og þrjár rannsóknir með þátttakendum (N=18.459) frá 19 löndum stóðust inntökuskilyrði. Niðurstöður sýndu að starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga, óþarfa viðvörunarhljóð, skortur á þekkingu og ónóg þjálfun hjúkrunarfræðinga voru letjandi þættir í öryggismenningu gjörgæsludeilda. Truflanir við upplýsingagjöf hjúkrunarfræðinga, hindranir við skráningu atvika og vinnuálag töldust einnig til letjandi þátta í öryggismenningu gjörgæsludeilda. Jafnframt bentu niðurstöður til að hjúkrunarfræðingar með langa starfsreynslu sem tileinka sér gagnreynda þekkingu og hjúkrunarfræðingar með sérmenntun dragi úr tíðni óvæntra atvika á gjörgæsludeild. Markviss upplýsingagjöf á vaktaskiptum, aukin færni- og hermikennsla hjúkrunarfræðinga og starfsumhverfi sem hvetur til atvikaskráningar töldust til hvetjandi þátta í öryggismenningu gjörgæsludeilda. Ályktun: Rannsóknir á öryggi sjúklinga hafa aðallega einblínt á starfsumhverfi og þekkingu hjúkrunarfræðinga. Ljóst er að þörf er á frekari rannsóknum á öryggi sjúklinga út frá upplifun og reynslu sjúklinganna sjálfra en slíkar rannsóknir gætu stuðlað að bættri meðferð og auknu öryggi sjúklinga á gjörgæsludeildum. Lykilorð: Öryggi sjúklinga, gjörgæsludeildir, gjörgæslumeðferð, hjúkrun
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Ragnhildur Jónmundsdóttir 1998-
- Edda Emelía Arnarsdóttir 2000-
- Hildur Margrét Birkisdóttir 2000-
- Lára Guðrún Sigurjónsdóttir 2001-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49901
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49901