Back to results

University of Iceland

Öryggi í fararbroddi: hvetjandi og letjandi þættir í öryggismenningu gjörgæsludeilda: Fræðileg samantekt með kerfisbundinni aðferð

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur: Á gjörgæsludeildum liggja alvarlega veikir sjúklingar sem eiga á hættu að verða fyrir óvæntum atvikum, sem tengjast daglegum störfum á gjörgæsludeildum. Hátækni umhverfi gjörgæsludeilda og þær sérhæfðu meðferðir sem veittar eru þar, eru meðal þeirra þátta sem gera sjúklinga á gjörgæsludeildum berskjaldaða fyrir atvikum. Tilgangur: Að efla öryggi sjúklinga á gjörgæsludeildum og dýpka skilning á þeim þáttum sem móta öryggismenningu og áhættu innan þessarar sérhæfðu heilbrigðisþjónustu. Aðferð: Fræðileg samantekt með kerfisbundinni aðferð eigindlegra, megindlegra og blandaðra rannsókna. Heimildaleit fór fram á PubMed, Web of Science, Science Direct og CINAHL og notast var við PRISMA flæðirit til að lýsa heimildaleit. Framkvæmt var gæðamat á lykilrannsóknum eftir gæðavísum Joanna Briggs Institute. Rannsóknir voru settar upp í yfirlitstöflu og voru niðurstöður þeirra samþættar í texta. Niðurstöður: Fjörutíu og þrjár rannsóknir með þátttakendum (N=18.459) frá 19 löndum stóðust inntökuskilyrði. Niðurstöður sýndu að starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga, óþarfa viðvörunarhljóð, skortur á þekkingu og ónóg þjálfun hjúkrunarfræðinga voru letjandi þættir í öryggismenningu gjörgæsludeilda. Truflanir við upplýsingagjöf hjúkrunarfræðinga, hindranir við skráningu atvika og vinnuálag töldust einnig til letjandi þátta í öryggismenningu gjörgæsludeilda. Jafnframt bentu niðurstöður til að hjúkrunarfræðingar með langa starfsreynslu sem tileinka sér gagnreynda þekkingu og hjúkrunarfræðingar með sérmenntun dragi úr tíðni óvæntra atvika á gjörgæsludeild. Markviss upplýsingagjöf á vaktaskiptum, aukin færni- og hermikennsla hjúkrunarfræðinga og starfsumhverfi sem hvetur til atvikaskráningar töldust til hvetjandi þátta í öryggismenningu gjörgæsludeilda. Ályktun: Rannsóknir á öryggi sjúklinga hafa aðallega einblínt á starfsumhverfi og þekkingu hjúkrunarfræðinga. Ljóst er að þörf er á frekari rannsóknum á öryggi sjúklinga út frá upplifun og reynslu sjúklinganna sjálfra en slíkar rannsóknir gætu stuðlað að bættri meðferð og auknu öryggi sjúklinga á gjörgæsludeildum. Lykilorð: Öryggi sjúklinga, gjörgæsludeildir, gjörgæslumeðferð, hjúkrun

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Ragnhildur Jónmundsdóttir 1998-
  • Edda Emelía Arnarsdóttir 2000-
  • Hildur Margrét Birkisdóttir 2000-
  • Lára Guðrún Sigurjónsdóttir 2001-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49901
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49901

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragnhildur Jónmundsdóttir 1998-; Edda Emelía Arnarsdóttir 2000-; Hildur Margrét Birkisdóttir 2000-; Lára Guðrún Sigurjónsdóttir 2001-. Öryggi í fararbroddi: hvetjandi og letjandi þættir í öryggismenningu gjörgæsludeilda: Fræðileg samantekt með kerfisbundinni aðferð. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49901