Back to results

University of Iceland

Leiðtogaskólinn - Stjórnendaþjálfun á vegum sveitarfélags

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að kanna og leggja mat á áhrif stjórnunarnámskeiðs á vegum sveitarfélags á leiðtogahætti og faglega þróun stjórnenda innan hins opinbera. Eins var miðað að því að bera kennsl á áskoranir og þörf á starfsþróun sem þessir stjórnendur upplifðu áður en þeir tókust á við námið og kanna á hvaða hátt þeir upplifðu að námið svaraði þessum þörfum. Einnig komu þátttakendur með tillögur að úrbótum að náminu. Notast var við eigindlega aðferðafræði við framkvæmd rannsóknarinnar. Þátttakendur voru 11 talsins og svöruðu þeir spurningalista með opnum spurningum áður en þeir tóku þátt í náminu. Eftir að námi lauk voru hálfopin viðtöl tekin við þátttakendur í rannsókninni. Niðurstöður benda til að leiðtogaþjálfun hafi jákvæð áhrif á störf þátttakenda. Þeir upplifðu sig öruggari sem stjórnendur og sumir sáu breytingu í eigin hegðun t.d. þegar kom að samskiptum við starfsfólk. Út frá niðurstöðum er hægt að draga þá ályktun að þátttakendur öðluðust bætta færni sem leiðtogar með aukinni meðvitund í viðbrögðum og ákvarðanatöku. Einnig kom í ljós að þátttakendum fannst gagnlegt að kynnast öðrum stjórnendum og mynda tengsl við aðra innan sveitarfélagsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • María Baldursdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/48994
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48994

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

María Baldursdóttir 1981-. Leiðtogaskólinn - Stjórnendaþjálfun á vegum sveitarfélags. 2025. https://hdl.handle.net/1946/48994