Back to results

University of Iceland

"Ég lít svona á þetta sem glugga sem maður hefur þangað til að maður er orðinn ennþá eldri, til að reyna að lifa lífinu" Viðhorf einstaklinga til starfsloka og stuðningur stjórnenda í aðdraganda þeirra

Abstract

dc:description.abstract

Starfslok eru stór tímamót sem fela í sér bæði áskoranir og tækifæri. Rannsóknin skoðaði upplifun einstaklinga af þessu ferli, með áherslu á hugtök, kenningar og áhrifaþætti. Starfslok eru skilgreind sem margþætt umbreytingarferli, þar sem sjálfsmynd, félagsleg tengsl og fjárhagslegt öryggi eru í lykilhlutverki. Kenningar um öldrun, svo sem hlutverkakenningin og athafnakenningin útskýra hvernig einstaklingar aðlagast breyttum aðstæðum. Rannsóknir sýna að sveigjanleg starfslok og markviss undirbúningur draga úr neikvæðum áhrifum og stuðla að vellíðan. Eigindleg aðferð var notuð og tekin voru viðtöl við átta einstaklinga sem nýlega höfðu hætt störfum. Þátttakendur greindu frá bæði jákvæðum og neikvæðum áhrifum starfsloka. Þættir eins og heilsufar, fjárhagslegt öryggi og stuðningur frá fjölskyldu og stjórnendum skiptu miklu máli. Sveigjanleg starfslok, þar sem einstaklingar minnkuðu við sig áður en þeir fóru af vinnumarkaði reyndust jákvæð fyrir aðlögun. Þeir sem upplifðu skort á stuðning frá stjórnendum og fengu lítinn undirbúning upplifðu meiri óvissu. Niðurstöður rannsóknarinnar bentu á að fjölbreytt upplifun einstaklinga tengist undirbúningi, vinnustaðamenningu og einstaklingsbundnum þáttum. Margir viðmælendur lögðu áherslu á mikilvægi sveigjanlegra starfsloka og ráðgjafar í aðdraganda starfsloka. Þá voru sumir sem fundu fyrir frelsis tilfinningu á meðan aðrir fundu fyrir tilgangsleysi eða félagslegri einangrun. Rannsóknin veitir innsýn í mikilvægi stuðnings og undirbúnings fyrir starfslok, bæði fyrir einstaklinga og vinnustaði. Hún undirstrikar að markviss stefnumótun vinnustaða, ásamt sveigjanleika og fræðslu, getur bætt upplifun af starfslokum og stuðlað að farsælum umbreytingum. Þá er vonast til að niðurstöður rannsóknarinnar geti nýst stjórnendum til að þróa stefnumótun sem eykur vellíðan starfsfólks á þessum tímamótum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rebekka Rós Ágústsdóttir 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/48830
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48830

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rebekka Rós Ágústsdóttir 1999-. "Ég lít svona á þetta sem glugga sem maður hefur þangað til að maður er orðinn ennþá eldri, til að reyna að lifa lífinu" Viðhorf einstaklinga til starfsloka og stuðningur stjórnenda í aðdraganda þeirra. 2025. https://hdl.handle.net/1946/48830