Back to results

University of Iceland

ALKBH3 and FTO: New Epitranscriptomic Regulators of DNA Double-Strand Break Response

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn er hlutverk ALKBH3 og FTO í viðgerðum á tvíþátta DNA brotum skoðað. Tvíþátta DNA brot eru meðal alvarlegustu skemmda sem frumurnar okkar verða fyrir. Ef ekki er gert við þessar skemmdir, eða ranglega gert við, geta þær leitt til stökkbreytinga, litningayfirfærsla, og sjúkdóma t.d. krabbameins. Nýleg rannsókn frá rannsóknarhópnum okkar sýndi fram á að ALKBH3 er metýlerað á stýrilsvæði í ~20% brjóstakrabbameina og að sterk fylgni sé milli aukins hlutfalls metýleringa og verri lífslíkum. Einnig hafa frumgögn hópsins bent til þess að ALKBH3 og FTO spili hlutverk í að viðhalda próteintjáningu RNF168 með sviperfðastjórnun, en slíkt er mikilvægt til að viðhalda stöðugleika erfðaefnisins og skilvirkum viðgerðum á tvíþátta DNA brotum. Í dag er hlutverk ALKBH3 og FTO í brjóstakrabbameinum óþekkt og orsökin bakvið verri lífslíkur brjóstakrabbameinssjúklinga sem skortir ALKBH3 er óljós. Þar af leiðandi er tilgangur rannsóknarinnar að skilgreina hlutverk ALKBH3 og FTO í viðgerðum á tvíþátta DNA brotum, ásamt mögulegum áhrifum þeirra á lyfjameðferðir og framvindu brjóstakrabbameina. Með því að meta skilvirkni viðgerða á tvíþátta DNA brotum bendir tap á ALKBH3, FTO og RNF168 til þess að jafnvægi milli viðgerðarferla raskist og þ.a.l. mögulega eykur óstöðugleika erfðaefnisins. Einnig, með því að framkvæma lífvænleikatilraunir, benda niðurstöður okkar til þess að skortur á ALKBH3, FTO og RNF168 auki næmi gegn meðferðarlyfjunum Mitomycin C og Neocarzinostatin. Þá þykir áhugavert að frumur sem skortir ALKBH3 sýna fram á ónæmi gegn meðferð með PARP hindrum, tegund markvissrar krabbameinsmeðferðar sem hefur verið notuð gegn krabbameinum sem hafa galla í endurröðunarviðgerð. Því ályktum við að ALKBH3 og FTO hafi mögulegt hlutverk í viðgerðum á tvíþátta DNA brotum ásamt því að eiga möguleika til að nýtast sem lífvísar fyrir lyfjameðferð. Við væntum þess að rannsóknin sé upphafspunktur fyrir áframhaldandi rannsóknir á ALKBH3 í tengslum við ónæmi gegn PARP hindrum, sem væri mögulega nýtt hlutverk fyrir þetta prótein.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birta Dröfn Jónsdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/48664
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48664

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birta Dröfn Jónsdóttir 1996-. ALKBH3 and FTO: New Epitranscriptomic Regulators of DNA Double-Strand Break Response. 2024. https://hdl.handle.net/1946/48664