Back to results

University of Iceland

Óperan og „að fara í óperuna“ Þjóðfræðileg greining á hefðinni, sviðsetning sjálfsmynda í ljósi helgiathafnarinnar og staða óperunnar í samtímanum.

Abstract

dc:description.abstract

Óperan er ekki þjóðfræðiefni sem hægt er að afmarka með skýrum hætti í eitt skipti fyrir öll. Hún er samgróin sögu Vesturlanda og hefur margþætt menningar- og félagslegt gildi fyrir marga hópa. Áhrifa hennar gætir víða í arkitektúr, bókmenntum og dægurmenningu svo fátt eitt sé nefnt. Í þessari ritgerð verður fjallað um óperuna út frá þjóðfræðilegu sjónarhorni og hún skoðuð sem hefð og hluti af helgiathöfninni „að fara í óperuna“. Þeir hópar sem tengjast beinlínis þeirri helgiathöfn eru greindir og fjallað um virkni þeirra í samtímanum og í sögulegu samhengi. Í ritgerðinni eru rök færð fyrir því að helgiathöfnin sjálf sé ein helsta ástæða langlífis og íhaldssemi formsins, vegna þess vægis sem vettvangurinn hefur upp á að bjóða hvað varðar sviðsetningu sjálfsmynda einstaklinga og hópa. Einnig er fjallað um óperufræði síðustu áratuga og félagslega sérstöðu óperunnar. Þá eru hugtökin hefðbinding og tónlistarvæðing könnuð og ljósi varpað á það hvernig hefðin er endursköpuð innan hugmynda um klassíska tónlist og í því samhengi bent á hlutverk hefðarbera, þeirra sem halda hefð á lífi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sveinn Dúa Hjörleifsson 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/48484
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48484

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sveinn Dúa Hjörleifsson 1984-. Óperan og „að fara í óperuna“ Þjóðfræðileg greining á hefðinni, sviðsetning sjálfsmynda í ljósi helgiathafnarinnar og staða óperunnar í samtímanum.. 2024. https://hdl.handle.net/1946/48484